Það jólalegasta sem til er Menning skrifar 15. desember 2016 09:30 Helga í Tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi þar sem hún kennir meðal annars. Vísir/Eyþór
Tónlistin skipar svo háan sess í jólaundirbúningi þjóðarinnar og Jólakonsertinn hans Corellis sem verður fluttur í dag spilar inn jólin á alveg einstakan hátt. Ég held að bæði mér og krökkunum finnist hann vera það jólalegasta sem til er,“ segir Helga Þórarinsdóttir, stjórnandi tónleika í Bókasafni Seltjarnarness sem hefjast klukkan fimm í dag. Hún tekur fram að flytjendurnir séu úr Tónskóla Sigursveins við Engjateiginn en ekki úr Tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi, því þar séu blásararnir svo ungir enn. „Krakkarnir sem koma fram í dag eru á menntaskólaaldri og ég er búin að þekkja þá í nokkur ár. Þeir eru átta talsins og eru hluti af Strengjasveit Tónskóla Sigursveins sem ég fór með til Ameríku núna í haust. Við eigum vinahljómsveit í Fíladelfíu sem við vorum að heimsækja og þetta var frábær ferð. Það eru nítján í sveitinni, við erum búin að bralla margt saman. Þetta er dásamlegur hópur og í honum ríkir alveg sérstaklega mikil vinátta og eindrægni. Nú voru bara margir svo uppteknir að þeir gátu ekki verið með, enda eru jólatónleikar í skólanum í kvöld og það eru í raun bara mestu töffararnir sem treysta sér til að spila á báðum tónleikunum.“ Helga varð fyrir alvarlegu slysi fyrir nokkrum árum og varð að leggja víóluleik á hilluna en kennir bæði við Tónlistarskólann á Seltjarnarnesi og Tónskóla Sigursveins á Engjateigi. Hún kveðst lánsöm að geta starfað við tónlistina enn og segir sérstaklega gaman að vinna með ungu fólki. Aftur að efnisskrá tónleika dagsins. „Það er yndislegt fyrir okkur sem erum klassískt innstillt að prógrammið okkar er alveg sérstaklega jólalegt,“ segir Helga og nefnir nokkur hefðbundin lög, bæði íslensk og útlend, Nóttin var sú ágæt ein, Hvít jól og fleira fallegt sem eflaust kemur gestum í hátíðarskap. „Ég held við séum komin nógu nálægt hinum helgu jólum til að þora að spila Heims um ból. Mér finnst ekki hægt að gera það öllu fyrr. Þannig er það líka með Jólakonsert Corellis, hann er extra jólalegur.“ Tónleikarnir eru hluti af samstarfsverkefni Bókasafns Seltjarnarness og Tónlistarskóla Seltjarnarness undir heitinu Tónstafir. Aðgangur er ókeypis. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 15. desember 2016.
Menning Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Fleiri fréttir „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Sjá meira