„Ef maður myndi tala við vinkonu sína eins og maður gerir við sjálfan sig þá ættir maður enga vini“ Stefán Árni Pálsson skrifar 10. febrúar 2016 11:30 Virkilega flottar stelpur hér á ferðinni. vísir
Könnun sem Dove framkvæmdi á Íslandi í fyrra sýndi að tvær þriðju af íslenskum konum á aldrinum 18 til 25 ára segja að áhyggjur af útliti og líkamsvexti hafi áhrif á sjálfstraust þeirra í daglegu lífi. Þróun sem er áhyggjuefni og brýnt að skoða. Í viðleitni til þess að efla líkamsmynd ungra kvenna á Íslandi hefur stúlkum í framhaldsskólum víðs vegar um landið verið boðið ókeypis á líkamsmyndarnámskeið frá því haust og verður því haldið áfram á þessu ári. Námskeiðið kallast The Body Project og þar eru þátttakendum kenndar ýmsar æfingar til að efla eigin líkamsmynd og sjálfstraust. Námskeiðin miða að því að efla gagnrýna hugsun gagnvart ríkjandi útlitsviðmiðum og auka sátt við eigin líkamsvöxt. Í myndbandinu sem fylgir fréttinni er rætt við fimm ungar stúlkur sem segja frá þeim þrýstingi sem þær upplifa um fullkomið útlit og líkamsvöxt og deila reynslu sinni af námskeiðinu. Body Project námskeiðin hafa verið rannsökuð bæði hér á landi og erlendis og hafa reynst hafa jákvæð áhrif á líkamsmynd stúlkna og dregið marktækt úr átröskunartilfellum. Það er því hægt að segja að The Body Project sé mikilvægt lóð á vogarskálarnar í þeirri baráttu að efla líkamsmynd ungra kvenna og fyrirtæki hafa enn fremur stutt við verkefnið á Íslandi svo búa megi betur í haginn fyrir komandi kynslóðir. Dove á Íslandi hefur til dæmis látið átta krónur af hverri seldri vöru renna beint til The Body Project á Íslandi og því hefur verið hægt að bjóða ungum konum í íslenskum framhaldsskólum upp á líkamsmyndarnámskeið endurgjaldslaust. „Við erum þegar búnar að bjóða námskeið í öllum framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Núna eftir áramótin erum við að færa okkur út á land og förum í tíu framhaldsskóla á landsbyggðinni fram á vor”, segir Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur sem stýrir verkefninu. „Við höfum verið í sambandi við námsráðgjafa skólanna og bendum stúlkum á að snúa sér til þeirra varðandi skráningu.“ Hægt að lesa nánar um námskeiðin á Facebook.Fjallað var um málið í þættinum Ísland í dag í gærkvöldi og má sjá innslagið hér að neðan
Mest lesið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning Fleiri fréttir Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Sjá meira