Þrjú umferðarslys á korteri á Suðurlandi í gærkvöldi Atli Ísleifsson skrifar 2. ágúst 2016 11:18 Lögregla var með mikið umferðareftirlit um verslunarmannahelgina. Vísir/Jóhann K. Jóhansson
Lögreglan á Suðurlandi hafði í nógu að snúast í gær og þurfti meðal annars að hafa afskipti vegna þriggja umferðarslysa sem urðu á um fimmtán mínútna tímabili í gærkvöldi. Umferð tók að þyngjast upp úr hádegi og var mikil fram eftir degi og fram á kvöld, en gekk í heildina vel. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi ók kona á mótorhjóli út af veginum við Uxahryggi skömmu fyrir klukkan sjö í gærkvöldi og kastaðist af hjólinu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var fengin til að sækja konuna og hún flutt á Landspítalann í Fossvogi. Nokkrum mínútum síðar var svo tilkynnt um bíla sem hafði verið ekið út af veginum rétt austan við Selfoss annars vegar og á Þingvallavegi hins vegar. Þar urðu þó ekki slys á fólki.Ökumenn látnir blása við Landeyjahöfn Lögreglan á Suðurlandi var með mikið eftirlit á veginum að Landeyjahöfn þar sem ökumenn voru látnir blása. Að sögn lögreglunnar á Selfossi voru að minnsta kosti átta ökumenn stöðvaðir þó að þeir kunni að hafa verið fleiri, en enn átti eftir að fá endanlegar tölur frá lögreglustöðinni á Hvolsvelli.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira