Yfirburðastaða Guðna vekur athygli Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 3. júní 2016 13:00 Baldur segir eðlilegt að fylgið fari á dreifingu þegar á líður. Mynd/samsett „
Það eru þó nokkrar breytingar frá síðustu könnun Félagsvísindastofnunar. En yfirburðarstaða Guðna vekur athygli,“ segir Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Guðni Th. Jóhannesson missir tólf prósentustig í nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands sem unnin var fyrir Morgunblaðið. Hástökkvarinn að þessu sinni er Halla Tómasdóttir. Þetta er á meðal niðurstaðna í skoðanakönnun Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands sem gerð var 1. og 2. júní. Guðni er þó enn með örugga forystu og mælist með tæplega 55 prósent fylgi en var með rúm 67 prósent í síðustu könnun stofnunarinnar sem var unnin fyrir Morgunblaðið. Á eftir honum kemur Davíð Oddsson sem bætir við sig tæpum tveimur prósentum og mælist með 19,7 prósent. Andri Snær bætir einnig við sig og mælist með 12,3 prósent en var með 7,8 prósent áður. Sá frambjóðandi sem mest bætir við sig að þessu sinni er Halla Tómasdóttir en hún fer upp um átta prósentustig úr 1,5 prósenti í 9,5 prósent. Sturla Jónsson mælist með 1,6 prósent, Ástþór Magnússon með eitt prósent og aðrir frambjóðendur samanlagt með 1,1 prósent.Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðiprófessorBaldur segir könnunina vera áhugaverða fyrir margar sakir ekki sýst vegna þess að Guðni Th mælist enn með yfirburðarfylgi þrátt fyrir að spjótum hafi verið beint að honum í almennum umræðum. „Einnig vekur athygli að sá frambjóðandi sem kemur næst honum í fylgi, Davíð Oddsson, skuli ekki hafa bætt meira við sig af því að hann hefur verið nokkuð áberandi síðustu daga og vikur og sótt nokkuð að Guðna í fjölmiðlum,“ segir hann. Þá virðist vera sem svo að það fylgi sem fari af Guðna sé að lenda hjá Höllu. „Við höfum nú séð svipaða þróun í forsetakosningum hér áður þegar frambjóðendur, hvort sem það var Ólafur Ragnar Grímsson árið 1996 eða Þóra Arnórsdóttir núna síðast, mælast með mikið fylgi skömmu eftir að þeir tilkynna framboð. Það er nokkurnveginn óraunhæft að svo mikið fylgi haldist, allt að 70 prósent, líkt Ólafur mældist með árið 1996. Og þegar frambjóðendur sem næstir koma fara að kynna sig og fá meiri fjölmiðlaathygli að þeir bæti við sig. Þessvegna hefði maður talið það eðlilegt að Halla, Andri Snær og Davíð bæti við sig,“ segir Baldur.Uppfært klukkan 14:19Þess ber að geta að Félagsvísindastofnun vann einnig könnun fyrir stuðningsmenn Guðna Th. Jóhannessonar. Hún var tekin dagana 23. maí til 25. maí á milli þeirra kannana sem unnar voru fyrir Morgunblaðið. Í þeirri könnun var Guðni Th. með 56,8 prósent. Þar á eftir kemur Davíð Oddsson með 22 prósenta fylgi. Andri Snær Magnason mældist með 12,3 prósent stuðning og Halla Tómasdóttir með 4,8. Aðrir frambjóðendur eru undir 2 prósentum.Create bar charts
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Sjá meira