Mane tryggði Southampton ótrúlegan sigur | Sjáðu mörkin og vítaklúðrið Anton Ingi Leifsson skrifar 20. mars 2016 15:15 Mane skorar í leiknum. vísir/getty
Southampton vann ótrúlegan sigur á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en lokatölur urðu 3-2. Liverpool leiddi í hálfleik 2-0. Það leit ekki út fyrir að Liverpool hafi verið að spila í vikunni því þeir byrjuðu af miklum krafti. Philippe Coutinho kom þeim yfir á sautjándu mínútu með laglegu skoti. Liverpool óð í færum og það kom ekki mikið á óvart að þeir skoruðu annað mark leiksins, en það gerði Daniel Sturridge með skoti innan vítateigs. Gestirnir frá Bítlaborginni fengu fleiri færi til þess að skora fleiri mörk og Joe Allen klikkaði meðal annars dauðafæri, einn gegn markverði, en staðan 2-0 í hálfleik. Það var allt annað að sjá heimamenn í Southampton í síðari hálfleik. Sadio Mane og Victor Wanyama komu inná sem varamenn í hálfleik og þeir létu til sín taka. Martin Skrtel kom einnig inná sem varamaður í hálfleik, en hann braut á Graziano Pelle þegar fjórar mínútur voru búnar af síðari hálfleik. Mane steig á punktinn, en lét Mignolet verja frá sér. Mane var staðráðinn í að bæta upp fyrir mistökin og hann skoraði laglegt mark á 64. mínútu þegar hann þrumaði boltanum í fjærhornið. Mignolet kom engum vörnum við. Þegar sjö mínútur voru eftir dró til tíðinda. Graziano Pelle jafnaði metin með geggjuðu skoti fyrir utan teiginn og heimamenn búnir að vinna upp tveggja marka forskot. Heimamenn voru ekki hættir því varamaðurinn Sadio Mane tryggði þeim ótrúlegan sigur fjórum mínútum fyrir leikslok með svipuðu marki og hann hafði skorað fyrr í leiknum, en lokatölur 3-2. Southampton er komið upp að hlið Manchester United í sjötta til sjöunda sæti deildarinnar með 47 stig, en United á tvo leiki til góða. Liverpool er í níunda sætinu með 44 stig.Philippe Coutinho kemur Liverpool í 0-1: Daniel Sturridge kemur Liverpool í 0-2: Vítaklúður hjá Southampton: Mane minnkar muninn í 1-2: Pelle jafnar í 2-2: Mane kemur Southampton í 3-2:
Enski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Fótbolti Fleiri fréttir Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Sjá meira