Gleðin yfir goslokum var einstök Viktoría Hermannsdóttir skrifar 2. júlí 2016 11:00 Elliði bæjarstjóri er spenntur fyrir hátíðinni um helgina. Mynd/Óskar Pétur
Goslokin eru svo sérstök hátíð. Hún er öðruvísi kannski en flestar bæjarhátíðir vegna þess að þetta hvílir á svo einstökum atburði í sögu lands og þjóðar,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Um helgina fer fram Goslokahátíð í Vestmannaeyjum þar sem goslokanna 3. júlí 1973 er minnst. Goslokahátíðin hefur verið haldin árlega undanfarin ár og fagnað reglulega allt frá 1974. „Þarna gaus bókstaflega undir fótunum á fólki. Um miðja nótt þurfti fólkið að flýja, eins og Bubbi söng um. Þetta var ekki gleðiviðburður í hugum Eyjamanna að þurfa að yfirgefa húsin og vita ekki hvort né hvenær þeir fengju aftur snúið. Gleðin við að gosið skyldi hafa svo hætt var mikil. Eyjamenn voru allt gosið, frá janúar til júlí, minnugir þess að Surtseyjargosið stóð svo árum skipti. Gleðin yfir goslokum var því svo einstök.“ Það ríkir mikil gleði á Goslokahátíðinni og fjölbreytt dagskrá er í boði fyrir alla aldurshópa. „Við slettum almennilega úr klaufunum að Eyjamannasið. Það eru 40-50 viðburðir á dagskrá. Þetta er gríðarlega fjölbreytt, frá málverkasýningum yfir í tónleika Frikka Dórs og Bjartmars,“ segir Elliði. Yfir daginn er dagskrá víða um bæinn og á kvöldin eru haldnir tónleikar í Skipasandi þar sem fjölmargir listamenn koma fram. Hátíðin stendur fram á sunnudag og endar á að komið verður upp stórum skjá á Stakkagerðistúni þar sem leikur Íslands og Frakklands verður sýndur. Elliði segir óhætt að lofa miklu stuði.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira