Landlæknir vill hækka virðisaukaskatt á sykraðan mat Ásgeir Erlendsson skrifar 7. ágúst 2016 19:30
Í upphafi ársins 2015 voru vörugjöld á sykruðum mat felld niður hér á landi en á sama tíma var virðisaukaskattur á mat og þar með sælgæti hækkaður úr sjö prósentum í ellefu. Í kjölfar þeirra breytinga skrifuðu sérfræðingar Landlæknisembættisins í lýðheilsu umsögn við frumvarpið þar sem embættið taldi ekki farsælt að lækka álögur á óhollustu eins og gosdrykki og sælgæti þar sem það gæti haft í för með sér aukna neyslu á þessum vörum. Hólmfríður Þorgeirsdóttir, var önnur þeirra sem, skrifaði umsögnina þá og hún telur nauðsynlegt að sykraðar matvörur verði færðar í hærra virðisaukaskattþrep. Sykraðar matvörur ættu því að bera 24% virðisaukaskatt í stað 11% sem nú er. „Niðurstöður rannsókna hefur sýnt að álögur á gosdrykki getur verið árángusrík leið til að draga úr neyslu þeirra.“ Breytingarnar á sínum tíma hafa verið í andstöðu við Landlæknisembættið og vinnuhóp á vegum Velferðarráðuneytisins. Hún vill að stjórnvöld hlusti betur á sérfræðinga í lýðheilsumálum þegar skattlagning á matvæli er ákveðin. „Auðvitað vildum við láta hlusta meira á það sem við erum að leggja til. Það sem niðurstöður rannsókna hafa sýnt að þetta geti bætt heilsu. Þannig gætu stjórnvöld skapað aðstæður til að stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum. Svo ég tala nú ekki um að það sem kæmi inn væri notað til að lækka álögur á hollustu eins og ávexti og grænmeti.“ Reynsla annarra landa sýni að aukin skattheimta á sykruð matvæli skili árangri. „Í Mexíkó var lagður 10% skattur á sykraða gosdrykki og fyrsta árið sem hann var lagður á drógst sala þeirra saman um 12%.“
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Það er ekkert bjart yfir okkur akkúrat í dag“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira