Rodgers hefur fengið fimm atvinnutilboð síðan hann var rekinn frá Liverpool Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. febrúar 2016 08:51 Rodgers var nálægt því að gera Liverpool að Englandsmeisturum tímabilið 2013-14. vísir/getty
Brendan Rodgers segist hafa fengið fimm atvinnutilboð síðan hann var rekinn frá Liverpool í október. Eitt þeirra liða sem falaðist eftir kröftum Rodgers var Swansea sem hann stýrði á árunum 2010-12. „Ég hef fengið fimm atvinnutilboð síðan ég yfirgaf Liverpool, allt frá félögum sem ég ber mikla virðingu fyrir, en mér fannst ég þurfa smá frí,“ sagði Norður-Írinn í samtali við beIN Sports. Rodgers segir að starf knattspyrnustjórans sé krefjandi og hann sé feginn að fá aðeins að anda. „Ég nýt þess að vera stjóri en þegar ég fór frá Liverpool fékk ég loks tíma til að setjast niður, skoða mín mál og fara yfir það sem ég get gert betur og vonandi nýtur næsta lið sem tek við góðs af því,“ sagði Rodgers sem hefur áður verið í þessari stöðu. „Sama staða kom upp þegar ég yfirgaf Reading 2009. Þá fékk ég smá frí og næsta lið sem ég tók við, Swansea, naut góðs af því og það gekk vel. Vonandi verður sama upp á teningnum núna, ég mun fara vel yfir mín mál og reyna svo að koma mér að hjá einhverju félagi í sumar.“ Eins og áður sagði bauðst Rodgers að taka aftur við Swansea eftir að Garry Monk var rekinn úr starfi í desember á síðasta ári. „Swansea er yndislegt félag, og það voru önnur úrvalsdeildarfélög sem mér buðust að taka við, en ég var opinn og hreinskilinn og sagði að ég væri ekki tilbúinn að taka við liði fyrr en eftir tímabilið,“ sagði Rodgers.
Enski boltinn Mest lesið Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Körfubolti Tveir Færeyingar til silfurliðsins Handbolti „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Íslenski boltinn „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Íslenski boltinn Pressa Þjóðverja bar loks árangur Fótbolti Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Íslenski boltinn Benedikt tekinn við Stólunum Körfubolti Njarðvíkingar rústuðu Þórsurum Íslenski boltinn Einkunnir Íslands: Glódís dró vagninn í Austurríki Fótbolti Fleiri fréttir Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Red Bull ryður sér til rúms í enska boltanum Breyta deildabikarnum til að létta á leikjaálagi bestu liðanna Samkeppnin eykst hjá Hákoni um markmannstöðu Brentford Einn af hverjum fimm atvinnumönnum notar nikótínpúða Ten Hag gæti þurft að bíða lengi eftir ákvörðun um framtíð sína Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina Njósnarar Liverpool áttu að fylgjast með Koopmeiners en hrifust að öðrum Edu getur ekki sagt það sem hann langar að segja um City Ten Hag skýtur á Slot: „Fólk hefur látið of mikið með Feyenoord“ Rashford kveður samfélagsmiðla í bili og sendir smá pillu Kraftaverkamaðurinn Emery framlengir á Villa Park Chelsea í viðræður um kaup á stjóra Leicester Tekur ekki við Chelsea sem vill ráða nýjan stjóra í vikunni „Fullt af mistökum“ Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Fernandes eyðir óvissunni: „Ég vil ekki fara“ Rooney gæti fengið nýtt starf þrátt fyrir hræðilegan árangur síðast Harry Maguire missir af bikarúrslitaleiknum Sjá meira