Málar mynstur gamalla útskurðargripa Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 20. ágúst 2016 11:15 "Ég er alltaf að vinna í myndlist,“ segir Sæunn og kveðst nota akrýl og vatnsliti. „
Ég er bara að ljúka við að hengja upp verkin, þau eru eitthvað um 40, bæði málverk og pappírsverk,“ segir Sæunn Þorsteinsdóttir myndlistarkona stödd í Gallerí Ormi í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Hún ætlar að opna sýninguna Mynstur þar á morgun, sunnudaginn 21. ágúst klukkan 16. Sæunn er uppalin í Skógum undir Eyjafjöllum og segir sum af málverkunum unnin eftir skissum sem hún gerði á safninu þar. „Ég hef alltaf verið heilluð af fortíðinni og því hvernig hún fléttast saman við samtímann og vísar veg til framtíðar,“ segir hún. Hún finnur líka gömlum íslenskum landshlutakortum og vörulistum ný hlutverk með því að brjóta pappírinn í origami-form og raða saman í hringmynstur.Eitt verkanna á sýningunni.„Ég er alltaf að vinna í myndlist,“ segir Sæunn sem er ásamt níu öðrum með hönnunar -og listagallerí á Skólavörðustíg 21. Skúmaskot heitir það og er í húsnæði gömlu Fatabúðarinnar. „Aðalvandinn undanfarnar vikur var að selja ekki of mikið svo ég hefði eitthvað til að sýna,“ segir hún glaðlega. Sýningin í Sögusetrinu stendur til 15. september milli klukkan 9 og 18. Greinin birtist fyrst 20. ágúst 2016.
Lífið Menning Mest lesið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Lífið Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Lífið Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira