Hressir hjálmar Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 20. ágúst 2016 10:00 Hjálmarnir eru tólf talsins og skreyttu teiknararnir þá eftir ólíkum þemum. Ágóði af sölunni rennur til Barnaheilla. Vísir/Hanna
Í dag fer fram myndlistarsýning og uppboð á reiðhjólahjálmum í Reiðhjólaversluninni Berlin. Hjálmarnir eru myndskreyttir af teiknurunum Erlu Maríu Árnadóttur, Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur, Lindu Ólafsdóttur og Lóu Hjálmtýsdóttur og eru hjálmarnir tólf talsins og koma frá Melon Helmets. Slippfélagið gaf málninguna sem notuð var til skreytinganna. „Við erum allar búnar að vera vinkonur í dálítið langan tíma, svona teiknaravinkonur. Við tókum þrjá hjálma á mann og teiknuðum á þá, hver með sínu lagi,“ segir Lóa en hjálmarnir hennar eru með vatns- lofts- og jarðarþema. „Ég var með hafmeyjur, regnboga, fugla og einn fjallakóng. Erla var með skordýraþema, Linda með fugla og Halla með sama þema og ég.“Hjálmarnir eru litríkir og skemmtilegir.Hjálmarnir eru glæsilegir og um mjög nytsamlega listgripi að ræða en þeir verða, líkt og áður segir, boðnir upp á morgun. Allur ágóði rennur til Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Samtökin standa árlega fyrir átakinu Hjólasöfnun. Þá er leitað til almennings eftir gömlum barnareiðhjólum sem gerð eru upp og gefin börnum sem koma úr efnaminni fjölskyldum. Viðburðurinn fer fram í Reiðhjólaversluninni Berlin sem er til húsa á Geirsgötu 5a og hefst klukkan 15.00. Allir velkomnir. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 20. ágúst.
Mest lesið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“