Staðsetti Angelo sem tólf ára í aldri Nadine Guðrún Yaghi skrifar 12. ágúst 2016 07:00 Móðir Angelo er vitni í málinu og gaf skýrslu fyrir dómi í gær. „
Hann er afskaplega léttur á yfirborðinu og hvers manns hugljúfi,“ sagði geðlæknirinn Tómas Zoëga, en hann er einn þeirra sem gáfu skýrslu sem vitni fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær í máli ákæruvaldsins gegn Angelo Uyleman, öðrum Hollendingi og tveimur Íslendingum. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa flutt tæplega 23 kíló af sterkum fíkniefnum til landsins með Norrænu í september í fyrra. Tómas á við Angelo en mál hans hefur vakið töluverða athygli sökum andlegra veikinda hans. Hann er 29 ára hollenskur ríkisborgari og er sá sem flutti efnin hingað til landsins. Angelo breytti framburði sínum fyrir dómi frá því sem hann sagði hjá lögreglu á sínum tíma þar sem hann kvaðst hafa vitað af fíkniefnunum í bílnum sem hann fór með hingað til lands. Fyrir dómi segist hann ekki hafa vitað af efnunum. Angelo þægilega barnalegur Tómas framkvæmdi geðmat á Angelo og sagði fyrir dómi að hann væri „þægilega barnalegur“ þegar hann var beðinn um að lýsa honum. Hann sagði Angelo vera þóknunargjarnan. „Já, hann vildi gera mér allt til geðs og vill ekki segja nei.“ Hann sagðist þó ekki átta sig á því hvort Angelo væri líklegur til að hafa þóknast lögreglu þegar þeir spurðu hann á sínum tíma hvort hann hefði vitað af efnunum. Við skýrslutöku hjá lögreglu var honum sagt að það liti asnalega út ef hann segðist ekki vita af efnunum og að þannig gæti hann átt von á þyngri dómiEfasemdir um árangur refsingar „Refsing kynni að bera árangur en ég hef ákveðnar efasemdir um það. Það er dómsins að ákveða,“ sagði Tómas og bætti við að Angelo væri þó ekki ósakhæfur í skilningi laga þrátt fyrir að greindarvísitala hans sé lág. „Hann er einlægur, auðtrúa, barnalegur og gerir allt til að þóknast mönnum. Þessi maður hefur ekki frumkvæði að einu né neinu af þessu tagi,“ sagði hann og bætti við að hann teldi að sérúrræði myndu henta betur en fangelsisrefsing. Angelo væri engum hættulegur. Þá kom vitnið Sólveig Jónsdóttir, doktor í taugasálfræði fyrir dóm. Hún framkvæmdi próf á Angelo en sagði hann ekki vera greindarskertan samkvæmt skilgreiningu sálfræðinnar. „Hann er með lága meðalgreind.“ Hún útskýrir að Angelo hafi tekið nokkur próf og væri mikill misstyrkur í færni hans, „hann stendur sig vel í sumu en er slakur í öðru“. Hún sagði hann sterkan í sjónrænum þáttum og að vinna úr sjónrænum upplýsingum.Sagði öllum sem hann þekkti frá nýju vinnunni Þá var Sólveig beðin um að staðsetja Angelo í aldri þrátt fyrir að hugtakið greindaraldur væri ekki notað í dag. Hún sagði þá: „Þetta er erfitt en ég gæti sagt 12 ára.“ Móðir Angelo er einnig vitni í málinu og gaf skýrslu í gær. Fréttablaðið fjallaði um það á sínum tíma að fjölskylda Angelo hafi ekki vitað hvar hann væri í fimm vikur en lögregla lét engan vita eftir að hann var handtekinn. Fjölskylda Angelo lét lýsa eftir honum í fjölmiðlum og komst þá að því að hann væri í fangelsi á Íslandi. Í kjölfarið lýsti hún yfir miklum áhyggjum enda sagði móðir hans son sinn verulega greindarskertan. Fyrir dómi í gær sagði hún Angelo hafa verið mjög glaðan eftir að honum var boðin vinna við að flytja sendingu til Íslands. „Hann hafði verið búinn að sækja um störf en fékk aldrei neitt. Hann fór til allra sem hann þekkti og sagði frá nýju vinnunni.“ Aðspurð hvort henni hafi ekki þótt grunsamlegt að sonur hennar hafi fengið þessa vinnu sagði hún að henni hafi þótt það skrítið og spurt hann af hverju Ísland, en hún hafi svo ákveðið að aðhafast ekkert meir. „Ég reyndi að hafa samband við þá sem útveguðu honum vinnuna en þá sögðust þeir ekki vera fyrirtæki og ég hætti að reyna.“Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Erlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Fleiri fréttir Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Sjá meira