Þjóðlögin svo ekta – enda búin að lifa af Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. júlí 2016 10:15 Ursel, Anna og Ute túlka íslenska þjóðlagaarfinn á nýjan og persónulegan hátt. Vísir/Stefán
Yfirskrift tónleikanna, Máninn líður, er sótt í heiti lags á dagskránni eftir Jón Leifs. Við tökum þrjú lög eftir hann, okkur finnst þau passa með íslenskum þjóðlögum og vera líka vel til þess fallin að búa til fallega hljóðumgjörð.“ Þetta segir Anna Jónsdóttir söngkona um prógramm sem hún og þýsku tónlistarkonurnar Ute Völkner og Ursel Schilcht ætla að flytja í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga í kvöld kl. 20.30. Hryggjarstykkið í flutningnum er söngur Önnu sem hún segir mjög blátt áfram og venjulegan. „Lögin halda sér eins og þau eru skrifuð fyrir sönginn þó að í tveimur þeirra bæti ég aðeins við frá eigin brjósti – en mjög nett. Þær Ute og Ursel spinna hins vegar svolítið inn á milli og búa til mjög skemmtileg hljóð á harmóníkuna og flygilinn, svolítið annars heims, sem passa vel við íslensku þjóðlögin. Þær ná ótrúlegri stemningu, ég fæ stundum alveg gæsahúð.“ Þær Anna, Ute og Ursel eru nýbúnar að halda tvenna tónleika fyrir norðan, á Hólum í Hjaltadal og Siglufirði, og segir Anna þær hafa fengið góðar undirtektir. Sjálf hefur Anna túrað um Ísland og sungið þjóðlög í vitum, hellum og gígum alein og segir gaman að syngja þau með hinum þýsku spunakonum. „Þjóðlögin eru svo ekta, enda búin að lifa af og þau bjóða upp á svo heillandi og fjölbreytta möguleika til túlkunar.“
Mest lesið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Lífið Matt Brown er látinn Lífið Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Bíó og sjónvarp Áslaug býður í partý Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið Fleiri fréttir „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“