Bóksali sem hvarf segir Kínverja hafa handtekið sig og knúið fram falska játningu Bjarki Ármannsson skrifar 16. júní 2016 23:00 Á blaðamannafundi fyrr í vikunni segist Lam hafa ákveðið að greina frá handtökunni, yfirheyrslunum og fölsku játningunni þar sem hann sé sá eini af fimmmenningunum sem á enga ættingja á meginlandi Kína. Vísir/EPA
Lam Víng-Kí, einn fimm bókasala í Hong Kong sem hurfu sporlaust í fyrra, segir að játning sem hann fór með í kínversku sjónvarpi í febrúar síðastliðnum hafi verið fölsk og knúin fram af kínverskum yfirvöldum. Lam starfaði ásamt hinum mönnunum fjórum hjá bókaútgáfu sem seldi bækur sem gagnrýna leiðtoga Kína. Þeir hurfu allir síðla árs í fyrra og eins þeirra er enn saknað. Hinir fjórir komu fram í kínversku sjónvarpi í febrúar og játuðu þar að hafa staðið í ólöglegum viðskiptum sem hafi leitt til handtöku þeirra. Lam segir hins vegar nú að hann hafi verið handtekinn, látinn skrifa undir plagg þar sem hann samþykkti að hafa ekki samband við lögfræðing eða fjölskyldu sína og svo látinn fara með fyrirfram skrifaða játningu í sjónvarpinu. Hann segir málið snúast um sölu á bókum sem eru kínverskum stjórnvöldum ekki að skapi. Hann hafi meðal annars verið beðinn um að nafngreina þá sem keypt hafi bækurnar af honum við yfirheyrslur en neitað.Á blaðamannafundi fyrr í vikunni segist Lam hafa ákveðið að greina frá handtökunni, yfirheyrslunum og fölsku játningunni þar sem hann sé sá eini af fimmmenningunum sem á enga ættingja á meginlandi Kína. „Ef ég þegi yfir þessu, þá á Hong Kong sér enga von,“ sagði Lam meðal annars á fundinum. Samkvæmt lögum í Hong Kong, sem áður tilheyrði breska konungsveldinu, hefur kínversk lögregla ekkert vald í borginni. Mál Lam og félaga hefur vakið athygli annarra ríkja, sem óttast að Kínversk stjórnvöld reyni að hefta tjáningarfrelsi í Hong Kong.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Talsmaður Trumps rekinn eftir brösulega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Sjá meira