Sport

Arnar Björnsson hitti einn frægasta tennisspilara sögunnar | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Svíinn Björn Borg er í hópi allra bestu tennisleikara sögunnar og hann varð á sínum fyrstur til að vinna ellefu risatmót í tennis.

Björn Borg vann meðal annars Wmbledon-tennismótið fimm ár í röð frá 1976 til 1980 og opna franska meistaramótið fjögur ár í röð frá 1978 til 1981.

Á hápunkti ferilsins síns var erfitt að finna frægari íþróttamann í heiminum og að margra mati er hann stærsta íþróttastjarna Norðurlanda fyrr og síðar.  

Arnar Björnsson, íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport, hitti Björn Borg í dag en hann er nú staddur á Íslandi. Það fór vel á með þeim félögum.

Björn Borg er staddur hér á landi til að fylgjast með þrettán ára syni sínum Leo sem er að keppa á Evrópumóti 14 ára og yngri sem fer fram í Kópvogi frá 30. maí til 5. júní.

Björn Borg heldur upp á sextugsafmælið sitt 6. júní næstkomandi en bestu ár hans voru á milli áranna 1974 til 1981.

Árið 1979 varð hann fyrstur til að vinna sér inn meira en milljón dollara á einu tímabili og hann fékk einnig mikinn pening frá styrktaraðilum á sínum ferli.

Björn Borg átti mikinn þátt í að auka vinsældir tennissins á áttunda áratugnum enda sannkölluð stórstjarna. Hann brann hinsvegar hratt út og lagði tennisspaðann á hilluna aðeins 26 ára gamall.

Arnar Björnsson ræddi við Björn Borg um ástæður þess að hann er hér á landi en fékk hann líka til að segja sér hver hafi verið eftirminnilegasti leikurinn hans á ferlinum.

Það kom kannski ekki mörgum á óvart hvaða leik hann nefndi en það er hægt að sjá allt innslagið í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×