Munu innsigla íbúðina ef ekki fæst leyfi Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 22. júlí 2016 07:00 Áttatíu prósent þeirra Airbnb-leigusala sem voru heimsóttir voru ekki með leyfi og eiga von á sektum. Vísir/Anton Brink „
Það var bankað harkalega og mjög ítrekað og ég hélt að það væri verið að brjótast inn,“ segir Jóhanna Andrea Hjartardóttir. Hún er ein af fimmtíu manns sem fulltrúar embættis ríkisskattstjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fóru til vegna Airbnb-leigu á miðvikudag. Jóhanna býr sjálf í risíbúð hússins en íbúðin sem hún leigir út er á hæðinni fyrir neðan. Tveir menn frá ríkisskattstjóra og einn lögregluþjónn mættu til Jóhönnu um kvöldmatarleytið. „Það dundu yfir mig spurningar, til dæmis hvort íbúðin væri til útleigu, hvort ég væri með leyfi og hvort ég væri í vinnu,“ segir Jóhanna en hún reyndi hvað hún gat að sækja um leyfi hjá sýslumanni í fyrra en fékk neitun. Hún gefur upp tekjur af útleigunni. „Ég var búin að reyna allt til að fá leyfið. Því var svo hafnað meðal annars vegna brunaútgönguleiðar en húsið er friðað og því erfitt fyrir mig að breyta,“ segir Jóhanna. Jóhönnu var tilkynnt að ef hún myndi ekki fá leyfi innan tveggja daga yrði lokað fyrir íbúðina. „Þeir sögðu að ég yrði að gera ráðstafanir og sannfæra sýslumann annars yrði lokað fyrir íbúðina. Lögreglumaðurinn var með svona innsiglisborða sem hann sýndi mér,“ segir Jóhanna en það voru gestir í íbúðinni þegar atvikið átti sér stað. „Þau voru að labba inn þegar þau sáu lögregluna banka með ofsa á hurðina. Þau þorðu ekki að labba inn og fóru í burtu þangað til þeir voru farnir.“ Jóhanna veit ekki hvað gerist í framhaldinu en starfsmaður hjá ríkisskattstjóra hringdi í hana í gær og ítrekaði upplýsingarnar.Sölvi MelaxSölvi Melax, talsmaður samtaka um skammtímaleigu á heimilum, segir heimsóknirnar á miðvikudag fordæmalausar. „Þarna kemur lögreglan og er með læti þar sem fólk er með gesti. Maður spyr sig hvernig væri að vera gestur í öðru landi og fá þær spurningar frá lögreglunni hvort leigusalinn sé búin að fá leyfi og borga skatta,“ segir Sölvi. Hann bætir við að margir sem fengu heimsókn hefðu gert allt til að fá leyfið en kerfið sé úrelt. Hann segir einnig að hvergi á heimasíðu skattsins séu leiðbeiningar um það hvergi skuli greiða skatta af skammtímaleigu. Sigurður Jensson, sviðsstjóri eftirlits ríkisskattstjóra, segir enga heimild til staðar til að loka íbúðum ef þær eru hluti af heimili. „Ef það er hins vegar sjálfstæð eining sem er ekki hluti af heimili þá er heimild til þess að loka á grundvelli leyfisleysis eða ef menn eru ekki að standa í skilum.“ Sigurður segir að spjótunum sé beint að höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjunum og að eftirlitið sé með sérstaka starfsmenn sem séu að skoða heimagistingarmál.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Tengdar fréttir Airbnb-lögin samþykkt: Heimilt að sekta um allt að milljón Frá og með næstu áramótum verður heimilt að leigja út íbúðir sínar án rekstrarleyfis í allt að níutíu daga á ári. 2. júní 2016 12:30 Lögregla og skattstjóri bönkuðu óvænt upp á hjá fjölda Airbnb-leigusala Áttatíu prósent þeirra sem voru heimsóttir voru ekki með leyfi og eiga von á sektum. 21. júlí 2016 10:30 Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Lögregla með eftirför í Vogahverfi Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira
Airbnb-lögin samþykkt: Heimilt að sekta um allt að milljón Frá og með næstu áramótum verður heimilt að leigja út íbúðir sínar án rekstrarleyfis í allt að níutíu daga á ári. 2. júní 2016 12:30
Lögregla og skattstjóri bönkuðu óvænt upp á hjá fjölda Airbnb-leigusala Áttatíu prósent þeirra sem voru heimsóttir voru ekki með leyfi og eiga von á sektum. 21. júlí 2016 10:30