Vitni segja árásarmanninn sem varð Íslendingi að bana hafa talað um dulkóðuð skjöl Atli Ísleifsson skrifar 22. júlí 2016 09:48 Árásin átti sér stað á ósamþykktu tjaldsvæði við Akallalänken í vesturhluta Stokkhólms. Árásarmaðurinn gengur enn laus. Vísir/Getty
Vitni segja að árásarmaðurinn sem varð Íslendingi að bana í Stokkhólmi á mánudaginn hafi hrópað eitthvað um dulkóðuð skjöl skömmu fyrir árásina. Lögregla segist ekki geta tjáð sig um upplýsingarnar að svo stöddu. Þetta kemur fram í frétt Aftonbladet, en DV greindi frá því í morgun að fórnarlamb árásarinnar væri 35 ára Íslendingur sem hefði búið í Svíþjóð frá tveggja ára aldri.Stunginn um fimmtán sinnumÁrásin átti sér stað á ósamþykktu tjaldsvæði við Akallalänken í vesturhluta Stokkhólms, mikilvægri umferðaræð milli höfuðborgarinnar og Järfälla. Maðurinn fannst liggjandi í blóði sínu um hádegisbil á mánudag og var fluttur á sjúkrahús með þyrlu þar sem hann var úrskurðaður látinn nokkru síðar. Vitni segja manninn hafa verið stunginn með hnífi um fimmtán sinnum og síðar ítrekað laminn með járnstöng.Árásarmaðurinn gengur lausÍ frétt Aftonbladet segir að upphaflega hafi gengið illa að bera kennsl á líkið en nú sé búið að upplýsa aðstandendum um málið. Árásarmaðurinn gengur enn laus og hefur lögregla engan grunaðan að svo stöddu. Enn hefur enginn verið handtekinn vegna málsins, en lögregla hefur yfirheyrt nokkurn fjölda fólks.Dulkóðuð skjöl Vitni segir að fyrir árásina hafi fórnarlambið og árásarmennirnir deilt og hafi árásarmaðurinn hrópað eitthvað um dulkóðuð skjöl. Vitni segja fórnarlambið hafa verið vel kunnugt á tölvur,en lögregla hefur ekki viljað tjáð sig um þessar upplýsingar. Lögregla greindi frá því á mánudaginn að fórnarlambið hafi nýlega komið á tjaldsvæðið. Vitni segja árásarmanninn hafa verið íbúum tjaldsvæðisins ókunnugur. Eftir árásina á maðurinn að hafa tekið saman eigur sínar í rólegheitum og yfirgefið staðinn.
Tengdar fréttir Íslendingur myrtur í Svíþjóð Morðinginn ófundinn. 22. júlí 2016 08:05 Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Starmer segir af sér Erlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Innlent Fleiri fréttir Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Sjá meira