Starfsmenn banka í Kína rassskelltir fyrir slæma frammistöðu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. júní 2016 12:00 Kínverskir bankastarfsmenn fengu það óþvegið um helgina í þjálfunarbúðum. Mynd/Skjáskot
Allt er nú vitlaust í Kína eftir að myndband, þar sem sjá má þjálfara rassskella starfsmenn banka upp á sviði vegna slæmrar frammistöðu, var birt í fjölmiðlum þar í landi. Myndbandið var fyrst birt af dagblaðinu Peoples's Daily í Kína. Þar sést bersýnilega hvernig þjálfari refsar starfsmönnum bankans fyrir slælega frammistöðu í þjálfunarbúðum sem hann sá um fyrir bankann. Spyr hann átta starfsmenn, sem allir eru upp á sviði fyrir framan samstarfsmenn sína, af hverju þeir hafi ekki staðið sig nógu vel, áður en hann rassskellir þá með priki. Búið er að reka tvo yfirmenn bankans, þar á meðal stjórnarformann bankans, Changzhi Zhangze Rural Commercial Bank í norður-Kína en atvikið átti sér stað í þjálfunarbúðum fyrir 200 starfsmenn bankans um síðustu helgi. Rassskellarinn, Jiang Yang, hefur beðist afsökunar og segist hafa notað rassskellingar árum saman sem þjálfunaraferð. Hann segir að yfirmenn bankans hafi ekki átt þátt í refsingunni. Í myndbandinu sést að Yang fer fjórar umferðir í rassskellingunum. Yfirvöld í Changzi-héraði í Kína segja að í þokkabót hafi hárið verið rakað af karlmönnunum og klippt af konunum. Bankinn segir að málið sé í rannsókn og að hann muni aðstoða starfsmenn sína í því að sækja skaðabætur til fyrirtækisins sem sá um þjálfunarbúðirnar.
Tengdar fréttir Áróðursstofnun Kína ekki nógu góð í áróðri Ný skýrsla segir að fréttaáróður hafi ekki verið nægilega hnitmiðaður og áhrifaríkur. 9. júní 2016 13:48 Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Erlent Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður Fleiri fréttir Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Einum úr áhöfninni bjargað Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Íranir verði sendir aftur til steinaldar en viðræður standi yfir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Ætla að fá þjóðernisflokki völdin í innflytjendamálum Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Dómari stöðvar framkvæmdir við veislusalinn Rýma svæði í Austur-Finnlandi vegna úkraínsks sprengjudróna Niðurgreiða þyndarstjórnunarlyf fyrir þá sem hafa fengið hjartaáfall eða heilablóðfall Sjá meira
Áróðursstofnun Kína ekki nógu góð í áróðri Ný skýrsla segir að fréttaáróður hafi ekki verið nægilega hnitmiðaður og áhrifaríkur. 9. júní 2016 13:48