Knattspyrnumaður í átján mánaða fangelsi fyrir nauðgun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. júlí 2016 13:53 Eyþór Helgi Birgisson hefur spilað á fimmta tug leikja í efstu deild, meðal annars með ÍBV og Víkingi í Ólafsvík. vísir/Daníel
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt Eyþór Helga Birgisson í átján mánaða fangelsi fyrir nauðgun sem átti sér stað í apríl árið 2014. Eyþór var sakfelldur fyrir að hafa sett fingur inn í kynfæri konu þar sem hún lá sofandi í rúmi sínu en hún gat ekki spornað við kynmökunum sökum svefndrunga og ölvunar. Eyþór Helgi þarf að greiða konunni 900 þúsund krónur í miskabætur. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands í gær og var hann fjölskipaður. Brotið var framið laugardagin 19. apríl fyrir tveimur árum en konan lagði fram kæruna viku síðar. Þau höfðu verið úti að skemmta sér, farið samferða heim en hann svo mætt til konunnar sem hafi hleypt honum inn. Eyþór hafði glatað lyklum að heimili sínu og beðið um að fá að gista.Facebook-samskipti sönnunargagn Konan bað vinkonu sína um að koma í heimsókn þar sem henni liði ekki vel við hve ágengur hann væri þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og fullyrðingar um að ekkert myndi gerast á milli þeirra. Sváfu þau öll í sama rúmi, hann á milli þeirra þar sem konan sagði Eyþór hafa verið ágengan en hún áfram neitað um að nokkuð gerðist. Þá bar vinkona hennar því við að hann hefði líka reynt við sig en hún hótað að bíta hann léti hann ekki af því. Að morgni vaknaði brotaþoli við það að fingur hans voru í leggöngum hennar. Eyþór þvertók fyrir dómi að hafa gert nokkuð slíkt. Til grundvallar dómnum voru Facebook-samskipti þeirra á milli daginn eftir brotið þar sem konan skrifaði: „Ef það er svona sem þú færð alltaf þínu fram, þá ertu ekkert annað en nauðgari…“ Svar Eyþórs var eftirfarandi: „Nei veit ekki hvað kom yfir mig, hef aldrei gert neitt svona adur og lidur omurlega yfir þessu.“Ótrúverðug skýring Eyþór sagðist fyrir dómi hafa verið að svara því að honum liði ömurlega yfir því að hafa sett konuna í þá stöðu að þurfa að hýsa sig um nóttina. Svo hefði hann farið án þess að kveðja. Í því hefði afsökunarbeiðnin falist. Dómurinn taldi framburð konunnar einlægan og trúverðugan auk þess að fá stoð í framburði vitna. Bæði vinkonu hennar, þriðja aðila sem var samferða í leigubíl og sálfræðings. Þá styrki Facebook-samskiptin sögu hennar þar sem fram komi að ákærði skilji ekki hvað hafi komið yfir hann. Hann voni að hún geti fyrirgefið honum einn daginn. Þá taldi dómurinn skýringu Eyþórs Helga á afsökunarbeiðni sinni afar ótrúverðuga og ótrúlegt að hann skyldi ekki mótmæla þeirri staðhæfingu brotaþola að hann væri nauðgari ef hann væri saklaus af þeim áburði. Var Eyþór því dæmdur í átján mánaða fangelsi og til að greiða 900 þúsund krónur í miskabætur. Dóminn í heild má lesa hér.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira