Langaði að framkalla afslappaða stemningu sem Inklaw hefur Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 10. desember 2016 07:00 Brot úr dansmyndbandi Dansstúdíós World Class og Inklaw Clothing. Mynd/Inklaw „
Það er frábært að vinna með strákunum í Inklaw. Þeir eru mega afslappaðir og við tengjumst þar. Ég fékk fullt listrænt frelsi við vinnslu á myndbandinu en mig langaði að ná að framkalla þessa afslöppuðu stemningu sem fatamerkið þeirra hefur. Mig langaði líka að einblína á að peysurnar myndu njóta sín með því að persónugera ekki dansarana. Það gerist að sjálfsögðu meira og minna í eftirvinnslu myndbandsins. Hörður Ragnarsson sá um upptöku og eftirvinnslu og á allan heiður af því. Lagið sem Inklaw vildu nota heitir Allt undir með Alexander Jarli, en það er með drungalega undirtóna og því er svona draugalegur bragur yfir þessu,“ segir Stella Rósenkranz, deildarstjóri og danskennari við Dansstúdíó World Class, spurð út í nýtt myndband sem vakið hefur talsverða athygli á samfélagsmiðlum seinustu daga. Dansarar í myndbandinu eru Bergdís Rún Jónasdóttir, Eydís Jansen, María Höskuldsdóttir, Rakel Kristinsdóttir og Stella Rósenkranz sjálf. „Þetta eru allt kennarar og nemendur við Dansstúdíó World Class. Eydís og María eru meðlimir í eldri danshóp skólans en þær eru báðar 13 ára og eru saman í dans duo og kalla sig ME Crew. Danshöfundar frá skólanum vinna mikið með íslenskum tónlistarmönnum og fá nemendur skólans því mörg tækifæri,“ segir Stella og bætir við að nú í haust hafi þær unnið með til dæmis Of Monsters and Men, Svölu Björgvins og Emmsjé Gauta. Strákana í Inklaw Clothing hefur lengi langað að láta reyna á dansmyndband í kynningu á fatalínu sinni og höfðu þeir því samband við Stellu fyrir nokkrum mánuðum. „Við erum rosalega ánægðir með afraksturinn af samstarfi við Dansstúdíó World Class. Við vissum að þau gætu leyst þetta vel. Stella tók svo alfarið við keflinu og á í rauninni allan heiður af gerð myndbandsins,“ segir Anton Sigfússon, spurður út í dansmyndbandið sem sýnir nýjustu línu Inklaw Clothing. Nýjasta línan er eins konar tilraun strákanna til að fylgja óskrifuðum reglum tískuheimsins um útgáfu á árstíðabundnum fatalínum. „Við höfum hingað til ekki verið að fylgja þeim reglum heldur hefur fyrirkomulagið fremur verið þannig að við markaðssetjum línur þegar okkur hentar og hafa þær þá verið fleiri og smærri. Þetta er sem sagt haust- og vetrarlínan okkar. Fyrsti hluti hennar var settur á markað í byrjun september, annar hluti í nóvember og svo verður þriðji og síðasti hlutinn settur í sölu eftir áramót. Af því sem þegar hefur verið markaðssett eru ellefu gerðir af jökkum, sex peysur, sex bolir og þrjár buxur,“ segir Anton Sigfússon, spurður út í nýjustu tískulínu Inklaw Clothing sem slegið hefur í gegn á síðustu mánuðum. Frá því að strákarnir í Inklaw Clothing hófu starfsemi sína árið 2013 hafa þeir verið að gera það ansi gott, og meðal annars fært út kvíarnar í byrjun þessa árs með hjálp Olivers Luckett, þekkts samfélagsmiðlasnillings. Fjölmargar stórstjörnur hafa klæðst hönnun frá þeim sem vakið hefur talsverða athygli vestanhafs. „Jú, það kemur alltaf reglulega fyrir. Það er samt ekki alltaf sem maður finnur í kjölfarið myndir af viðkomandi í fötunum. Það getur verið algjör frumskógur að skoða allar myndirnar sem teknar eru af sumum af þessum einstaklingum og það þarf svo ekki að vera að viðkomandi hafi verið í fötunum að viðstöddum myndavélum. Þessi leit ber hins vegar stundum árangur og er það þá stór bónus,“ útskýrir Anton. Strákarnir setja markið hátt fyrir árið 2017 og ætla meðal annars að reyna komast að í verslunum erlendis. Aðspurðir hvort stórir samningar séu í höfn segir Anton að erfitt sé að svara þeirri spurningu að svo stöddu, þar sem allt slíkt sé enn á viðkvæmu stigi.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Eva Marie Saint er látin Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Fleiri fréttir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Sjá meira