Conor er bara pappírsmeistari Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. desember 2016 23:15 Það vilja allir taka beltin af Conor. vísir/getty
Það eru allir til í að rífa kjaft við Conor McGregor í von um að ná eyrum írska heimsmeistarans og fá að berjast við hann. Það þýðir einfaldlega stærsti útborgunardagur lífsins að berjast við Conor. Nú er það Tony Ferguson léttvigtarkappi sem hefur ákveðið að láta Conor heyra það. Sá mun væntanlega mæta Khabib Nurmagomedov í bardaga um réttinn til þess að keppa við Conor um titilinn í léttvigtinni. Írinn ætlar að taka sér nokkurra mánaða frí eftir mjög erfitt ár sem endaði með því að hann varð fyrsti tvöfaldi meistarinn hjá UFC. Ferguson og Nurmagomedov hafa í tvígang átt að mætast en í bæði skiptin hefur þurft að fresta bardaganum vegna meiðsla.Tony Ferguson.vísir/gettyNú bendir allt til þess að þeir muni mætast á nýju ári um réttinn til þess að berjast við Conor. Sá bardagi fer samt líklega ekki fram fyrr en í fyrsta lagi næsta sumar. Næsta haust er líklegra. „Conor er bara að handvelja sér andstæðinga. Hann er bara pappírsmeistari. Þegar menn komst i slíka stöðu geta þeir fylgst með andstæðingum sínum. Conor er enginn meistari í mínum augum,“ sagði Ferguson voða harður en hann er ekki lítið hrifinn af sjálfum sér. „Conor er bara búinn að keppa einu sinni í léttvigt og ætlar nú í frí. Khabib er svo búinn að vera mikið fjarverandi. Ég er eini maðurinn sem er að láta til mín taka í þessum þyngdarflokki. Mín verður minnst sem goðsagnar. Það mun gerast. Ég fer í heiðurshöll UFC.“
MMA Mest lesið Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Boða til boxveislu þó það sé enn bannað Sport Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Aftur tapaði Real og rauða spjaldið tvisvar á loft Fótbolti Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Enski boltinn Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Körfubolti Fleiri fréttir Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Boða til boxveislu þó það sé enn bannað Aftur tapaði Real og rauða spjaldið tvisvar á loft Hanga fyrir ofan strik á markatölu Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu „Hefðum þurft að hitta betur fyrir utan“ Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Skráir nýjan kafla í skíðasögu Íslendinga „Þarna áttu bara að taka yfir leikinn“ Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking Sonur Åge Hareide ráðinn til Molde Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur áhrif á Ólympíumót fatlaðra Helena ekki lengur ein í þrjátíu stiga þrennuhópnum Særðir og í hefndarhug: „Erum að fara í alvöru skrímsli“ Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Væri kominn í þúsund mörk ef hann hefði nýtt öll vítin Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Chelsea jafnaði metið sem lið Heiðars Helgu setti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila „Hvað er hann að gera hér?“ Slot finnst sjaldnast gaman að horfa á enska boltann „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Borgaði meira en 28 milljónir króna fyrir Ólympíugallann hennar Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Hefur aldrei fengið hausverk á ævinni Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Sjá meira