Sjóræningjar herja á sjómenn í Venesúela Samúel Karl Ólason skrifar 8. desember 2016 12:22 Árið 2004 veiddu sjómenn Venesúela um 120 þúsund tonn af túnfiski, en nú er aflinn undir 40 þúsund tonnum. Vísir/AFP
Sjóræningjar herja nú á sjómenn í Venesúela, en öflugur iðnaður er nú í lamasessi í landinu sem hefur gengið í gegnum veruleg vandræði á undanförnum árum. Gengi fyrrverandi sjómanna ræna aflanum af þeim sem hætta sér út á sjó og stela einnig vélum úr bátum þeirra, henda þeim útbyrðis eða myrða þá jafnvel. Efnahagur Venesúela, sem fyrir ekki svo löngu síðan, var í hæstu hæðum, er nú á hnjánum. Búfénaður drepst þar sem bændur eiga ekki fyrir fæð. Bændur þurfa að reyna að kaupa sér mat sem þeir ræktuðu áður en geta ekki nú þar sem áburður er ekki til í landinu. Venesúela býr yfir miklum olíulindum en nánast allur iðnaður í landinu er óstarræktur.Sjá einnig: Sjálfskaparvíti Venesúela - Sósíalíska draumaríkið sem kollvarpaðist í martröð Árið 2004 veiddu sjómenn Venesúela um 120 þúsund tonn af túnfiski, samkvæmt AP fréttaveitunni, en nú er aflinn undir 40 þúsund tonnum. Íbúar hafa gripið til þeirra örþrifaráða að stela netum, ljósavélum og vélum úr fiskibátum svo stór hluti fiskiskipaflota landsins er svo gott sem ónýtur. Ein stærsta höfn héraðsins Sucre er nánast tóm af bátum. Yfirvöld Venesúela þjóðnýttu stærsta útgerðarfyrirtæki héraðsins árið 2010, með mjög slæmum afleiðingum. Rúmlega helmingurinn af flota fyrirtækisins liggur nú við bryggju og ryðgar. Fjölmörg einkafyrirtæki hafa flutt sig til nágrannalanda Venesúela. Samkvæmt lögum landsins eru útgerðarfyrirtæki tilneydd til að selja helming afla síns til stjórnvalda fyrir gjaldmiðil ríkisins, bolivar, sem er nánast verðlaus.Sjóræningjar halda hópinn AP ræddi við hinn 42 ára gamla Edecio Marval sem lenti nýverið í hræðilegri lífsreynslu. Hann var að veiðum með syni sínum, ungum frænda og tveimur öðrum mönnum þegar sjóræningjar stöðvuðu þá. Auk þess að ræna öllum afla þeirra og mótornum af bátunum þeirra skutu þeir elsta son Marval og mennina tvo sem voru með þeim. Þegar röðin kom að ungum frænda hans kallaði einn sjóræninginn: „Nei, þetta er vinur minn“. Þeir tveir höfðu verið saman á sjó þar til í fyrra. Sjóræningjarnir skildu þá eftir í vélarlausum bát, en Marval og frændi hans reyndu að ná sambandi við einhvern í landi með því að senda frá sér merki með ljósum. Þegar þeim var bjargað í land sögðu þeir lögreglunni að þeir þekktu yfirmann sjóræningjanna. Hann væri 19 ára gamall og héti El Beta. El Beta og 40 menn hans bjuggu í tæplega kílómetra fjarlægð frá þorpi Marval. Sjóræningjaforinginn hringdi í Marval nokkrum dögum síðar og hótaði að myrða alla fjölskyldu hans. „Bróðir þinn grét eins og tík þegar ég drap hann. Nú kem ég á eftir ykkur öllum,“ sagði Beta á upptöku sem Marval lét lögregluna fá. Samkvæmt AP eru lögregluþjónar tregir við að handtaka fjölda manna í landinu þar sem öll fangelsi eru yfirfull og menn sofa til skiptis í fangaklefum, þar sem allir geta ekki legið í einu. Strandgæslan hefur verið að reyna að halda aftur af sjóræningjum. Fimm foringjar hafa verið ákærðir fyrir að ráðast inn í strandþorp og myrða níu meðlimi fjölskyldu sem talin er tilheyra gengi sjóræningja. „Þú heyrir sjórán og hugsar um menn ræna gámaskipum við strendur Afríku. Hér eru þetta bara fátækir sjómenn að ræna aðra fátæka sjómenn,“ segir lögmaðurinn Luis Morales. „Þetta eru sambærilegir glæpir og við sjáum á götunum, en hafa dreift úr sér á sjóinn. Á morgun munu þeir sjást á bóndabæjum og í fjöllunum.“
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Erlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira