Með skiptilykil og ananas Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 26. nóvember 2016 11:45 Þau Katie Buckley og Frank Aarnink í Duo Harpverk taka upp á ýmsu bæði utan sviðs og innan. ?
Þetta verður fjölbreytt prógramm,? segir Frank Aarnink slagverksleikari um efnisskrá tónleikanna Töfratóna Duo Harpverk sem hefjast klukkan 15.15 í Norræna húsinu síðdegis á morgun. Þar spilar hann ásamt Katie Buckley hörpuleikara og saman mynda þau Duo Harpverk. ?„Við erum með einn frumflutning, eftir Inga Garðar Erlendsson. Hitt efnið er úr okkar safni,?“ segir Frank og heldur áfram: ?„Þrjú þeirra verka höfum við bara spilað einu sinni áður. Það var 2012 svo við þurfum að æfa þau núna eins og um frumflutning sé að ræða. Þetta eru Oneness of One Is One eftir Bergrúnu Snæbjörnsdóttur, Brú eftir Þráin Hjálmarsson og Amsterdam eftir Jeppe Petersen. Þráinn er með nóturnar bæði á blöðum og vídeói og nóturnar hennar Bergrúnar eru svo fallega skrifaðar að þær eru listaverk út af fyrir sig.?“ Allir sem eiga verk á tónleikunum eru félagar í tónskáldahópnum S.L.Á.T.U.R. Einn þeirra er Áki Ásgeirsson sem á verkið 242 Degrees. Í því kveðst Frank vera með skiptilykil og ananas á sviðinu. Það er greinilega tekið upp á ýmsu hjá þessum hópi. Frank tekur undir það. ? „Síðast þegar Ingi Garðar sendi okkur verk þurftum við að spila á plastslöngu, tíu metra langa en við vitum ekki hvað bíður okkar núna.?“Þetta eru síðustu 15:15 tónleikarnir á árinu 2016.
Menning Mest lesið Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Big Pussy er látinn Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira