Sveinbjörg Birna spyr út í launakjör Dags Jakob Bjarnar skrifar 17. nóvember 2016 09:56 Sveinbjörg Birna ætlar að forvitnast um launakjör borgarstjóra nú á eftir en Dagur þiggur meðal annars 305 þúsund krónur fyrir að sitja mánaðarlega fund hjá Faxaflóahöfnum.
Borgarstjóri er með 1,5 milljón á mánuði auk þess sem hann þiggur rúmar 300 þúsund krónur fyrir setu í stjórn Faxaflóahafna. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknarmanna í borginni, hyggst á borgarstjórnarfundi nú í dag, leggja fram sérstaka fyrirspurn um launakjör Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Laun borgarstjóra eru þau sömu og forsætisráðherra, sem voru fyrir hina umdeildu hækkun sem kjararáð ákvarðaði og kynnt var strax í kjölfar síðustu alþingiskosninga. Þau laun eru 1,5 milljón en eiga að fara í rúmar tvær milljónir. Dagur lagði reyndar fram tillögu í vikunni sem samþykkt var í borgarstjórn þess efnis að laun kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg yrðu óbreytt þrátt fyrir úrskurð kjararáðs. Í tengslum við umræðu um það kom fram að laun borgarfulltrúa eru hlutfall af þingfararkaupi, 70 prósent utan borgarstjóra sem er á pari við forsætisráðherra.Nefndarstörf og ívilnanir hleypa laununum upp En, strípaður launataxti stjórnmálamanna segir ekki alla söguna. Nefndarstörf og allskyns ívilnanir hleypa laununum vel upp. Fréttatíminn greindi frá því fyrir skömmu að stjórnarmenn í Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahafna, þar sem formaðurinn er borgarstjórinn sjálfur, Dagur B. Eggertsson, og þiggur hann 305 þúsund krónur fyrir að sitja mánaðarlegan fund. Vísir heyrði í Sveinbjörgu fyrir borgarstjórnarfund og hún ætlar að spyrja út í þessi atriði auk þess að óska eftir því hver laun borgarstjóra eru vegna setu í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Almannavörnum?Hvað kostar bíllinn? Sveinbjörg tjáði Vísi að hún ætlaði einnig að óska eftir upplýsingum um hvenær það var síðast sem borgarstjóri tók sæti sem stjórnarformaður og/eða stjórnarmaður í Faxaflóahöfnum eða Orkuveitunni og þáði greiðslur fyrir. Eftir því sem Vísir kemst næst eru fá ef nokkur fordæmi fyrir því. Þá mun Sveinbjörg jafnframt fara fram á upplýsingar um embættisbifreið borgarstjóra, hvenær hún var keypt, af hverjum og kaupverð.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Bað um myndir af kynfærum tíu ára stúlku Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Sjá meira