Setja aftur upp fyrstu sýningu skólans Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 25. október 2016 10:00 Verslunarskóli Íslands setur upp leiksýninguna The Breakfast Club 4. nóvember. Fréttablaðið/Ernir.
Leikritið er byggt lauslega á samnefndri kvikmynd frá árinu 1984, eftir John Hughes. Það fjallar um hóp unglinga sem þekkjast lítið sem ekkert en neyðast til að verja heilum laugardegi saman á bókasafni, undir eftirliti kennara sem hefur innleitt eftirsetu að hætti bandarískra menntaskóla, í Verzlunarskóla Íslands,“ segir Dominique Gyða Sigrúnardóttir, leikstjóri sýningarinnar The Breakfast Club, sem Verzlunarskóli Íslands mun frumsýna 4. nóvember næstkomandi í bláa sal Verzlunarskólans. Um er að ræða afmælissýningu skólans, en mikil tilviljun er að sama sýning var sett upp í Verzlunarskólanum fyrir 30 árum, árið sem hið nýja húsnæði skólans var tekið í notkun. „Þetta er algjör tilviljun. Verkið var svo sett upp aftur 1996, þá var það Jakob Ingimundarson sem leikstýrði og Jóhannes Ásbjörnsson, betur þekktur sem Jói í „Simmi og Jói“, fór með eitt af aðalhlutverkunum í verkinu,“ segir Dominique. Óhætt að segja að nóg sé um að vera í uppsetningarferli verksins í dag, þar sem tæpar tvær vikur eru þar til hópurinn frumsýnir leikritið. „Við erum byrjuð að renna, hljóð og ljós eru að detta inn. Það er spennandi staður að vera á í svona ferli þegar verkið fer að taka á sig mynd,“ segir hún.Dominique Gyða Sigrúnardóttir leikstýrir sýningunni.Leikritið er byggt lauslega á kvikmyndinni, en töluverðar breytingar hafa orðið á þýðingu handritsins. „Ég hafði oft séð myndina en það var margt sem rann ekki upp fyrir mér fyrr en ég fór að þýða verkið og skrifa leikgerðina. Það kom mér á óvart að það er töluvert um ofbeldi í kvikmyndahandritinu. Kennarinn hótar að berja nemanda fyrir að hafa gert grín að honum og einn af nemendunum spyr annan mjög persónulegra og kynferðislegra spurninga sem myndi flokkast sem kynferðisleg áreitni í dag,“ segir Dominique, og bætir við að hópurinn hafi rætt þetta vel og verið mjög gagnrýninn á handritið. Fjöldi fólks kemur að sýningunni í ár, aðstoðarleikstjóri er Máni Huginsson, nemandi á öðru ári, og tónlistarmaðurinn Daði Freyr Pétursson, betur þekktur sem Mixophrygian, sér um tónlistina.„Við höfum mikla trú á að tónlistin muni koma áhorfendum skemmtilega á óvart,“ segir Dominique. Með aðalhlutverk í sýningunni fara þau Tómas Arnar Þorláksson, Höskuldur Þór Jónsson, Karítas Bjarkardóttir, Mikael Emil Kaaber, Selma Kristín Gísladóttir, Viktor Pétur Finnsson og Þórdís Jakobsdóttir en þau þykja öll efnilegir leikarar. „Krakkarnir hafa unnið hörðum höndum við að gera karakterana að sínum án þess að glata megineinkennum upprunalegu fyrirmyndanna. Þau hafa vikulega gefið út svokölluð karaktermyndbönd á heimasíðu leikritsins á Facebook, leiksýning Verzlunarskóla Íslands 2016. Myndböndin hafa fengið frábær viðbrögð og skapað smá eftirvæntingu,“ segir Dominique.
Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Sjá meira