Lífið

Martröð Örnu Ýrar lokið: Komin heim eftir að hafa vakið heimsathygli fyrir að hætta í fegurðarkeppni

Birgir Olgeirsson skrifar
Arna Ýr var í áætlunarflugi Wow Air frá Los Angeles sem lenti á Keflavíkurflugvelli á fimmta tímanum í morgun en kærasti hennar Egill Trausti Ómarsson tók á móti henni.
Arna Ýr var í áætlunarflugi Wow Air frá Los Angeles sem lenti á Keflavíkurflugvelli á fimmta tímanum í morgun en kærasti hennar Egill Trausti Ómarsson tók á móti henni. vísir/hanna
Arna Ýr Jónsdóttir er komin til landsins eftir að hafa vakið heimsathygli fyrir að draga sig úr fegurðarsamkeppninni Miss Grand International í Las Vegas eftir að eigandi hennar sagði henni að grenna sig.

Arna Ýr var í áætlunarflugi Wow Air frá Los Angeles sem lenti á Keflavíkurflugvelli á fimmta tímanum í morgun en kærasti hennar Egill Trausti Ómarsson tók á móti henni.

Sjá einnig: Kærasti Örnu Ýrar: „Alltaf verið mjög sjálfstæð með svona“

Arna Ýr og kærasti hennar, Egill Trausti.vísir/hanna
Það má segja að upplifun Örnu Ýrar af Miss Grand International hafi verið martraðarkennd. Síðastliðinn föstudag fékk hún þau skilaboð frá eiganda keppninnar, Nawat Itsaragrisil, að ef hún þyrfti að grenna sig til að vinna keppnina. Sagði hann að hún ætti að sleppa máltíðum, borða salat og drekka vatn á hverju kvöldi fram að keppni.

Arna Ýr sagði frá þessum skilaboðum eigenda keppninnar samdægurs Snapchat og sagðist ekki ætla taka þátt ef hann ætlaði að standa við þau.



Stóðu yfir henni meðan hún myndaði Snapchat-skilaboð

Degi síðar sagði hún frá því á Snapchat að um misskilning hefði verið að ræða og hún ætlaði að taka þátt. Á sunnudag steig hún aftur fram á Snapchat og sagði að sér hefði verið skipað af eiganda keppninnar og framkvæmdastjóra hennar að segja að um misskilning hefði verið að ræða.

Raunin var sú að henni var sagt að létta sig til að eiga möguleika á að vinna keppnina.

Í viðtali við útvarpsþáttinn Þrjár í fötu á FM957 síðastliðið sunnudagskvöld sagði Arna Ýr að eigandinn og framkvæmdastjórinn hefðu staðið yfir sér á meðan hún myndaði Snapchat-skilaboðin þar sem hún sagði að um misskilning hefði verið að ræða.

Margir skynjuðu að ekki væri allt með felldu

Þáttastjórnendur Þriggja í fötu sögðu frá því að þeir hefðu skynjað að ekki væri allt með felldu þegar Arna Ýr sagði frá því á Snapchat að um misskilning hefði verið að ræða, en þær voru ekki þær einu.

María Lilja Þrastardóttir skynjaði það einnig, setti sig í samband við Örnu Ýr og bauðst til að borga flugfar fyrir hana heim til Íslands gegn því að hún myndi draga sig úr keppni. Sem Arna Ýr gerði.

Sama hversu mikið er boðið

Eigandinn og framkvæmdastjórinn voru óánægðir með þá ákvörðun og reyndu að fá Örnu Ýr til að skipta um skoðun, meðal annars með því að gefa það til kynna að hún væri afar sigurstrangleg og ætti þar með von á 40 þúsund dollurum í verðlaunafé, 4,5 milljónum íslenskra króna.

Arna Ýr sagði í viðtali við Þrjár í fötu að það væri sama hversu mikið henni yrði boðið, hún myndi aldrei taka þátt í þessari keppni. Hún sagði jafnframt að síðustu dagar hefðu reynt mikið á hana og verið allt að því martraðarkenndir. Hún væri þó afar stolt af sér fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun og var himinlifandi. 

Vildu hundruð þúsunda fyrir vegabréfið

En samskiptum hennar við forsvarsmenn keppninnar var þar með ekki lokið. Í gær greindi hún frá því að þeir væru með vegabréfið hennar og hún þyrfti að ná því aftur.

Eigandi keppninnar fóru fram á 3.000 dollara, eða um 350 þúsund íslenskar krónur, í staðinn fyrir passann. Með hjálp öryggisvarða, sem útskýrðu að ekki mætti halda eftir vegabréfi Örnu Ýrar, fékk hún passann aftur í hendurnar og gat þar með haldið heim á leið til Íslands.

Sjá einnig: „Það voru átök við að ná passanum aftur“

„Mér líður eins og ég hafi hætt á toppi tilverunnar. Ég er svo hamingjusöm,“ sagði Arna Ýr í gær á Snapchat eftir að hafa fengið vegabréfið aftur.

Arna Ýr hefur vakið heimsathygli.vísir/hanna
Keppnin reynir „að stoppa stríð og ofbeldi“

Miss Grand International er alþjóðleg fegurðarkeppni en yfirlýst markmið hennar er „að stoppa stríð og ofbeldi.“ Hún er sögð ein af fimm stærstu fegurðarkeppnum heims, ásamt Miss Universe, Miss World, Miss International og Miss Supranational.

Hún var stofnuð af Nawat Itsaragrisil árið 2013 og haldin þrisvar í Bangkok í Taílandi en í ár var hún í fyrsta skiptið haldin í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Las Vegas.

Sjá einnig: Maðurinn sem sagði Örnu Ýr að grenna sig kallaður „ballarvaffla“ á Wikipediu

Árið 2013 var Janelee Chaparro, frá Púertó Ríkó, krýnd sigurvegari, Árið 2014 var það Daryanne Lees frá Kúbu en í fyrra Anea Garcia frá Dóminíska lýðveldinu krýnd sigurvegari.

Sigurvegarinn í fyrra skilaði krúnunni

Í mars síðastliðnum skilaði hún krúnunni eftir að hafa að upp kom mál sem varðaði ásakanir um árás á meðan hún var í erindagjörðum fyrir keppnina í Suður-Súdan, þar sem hún óttaðist meðal annars um öryggi sitt. Itsaragrisil er sagður ekkert aðhafst í því máli en eftir að Garcia skilaði krúnunni var sú sem endaði í öðru sæti, hin ástralska Claire Elizabeth Pearl Parker, krýnd Miss Grand International.

Arna Ýr segir síðustu daga hafa reynt mikið á sig og verið allt að því matraðarkenndir.vísir/hanna
Arna Ýr segist afar stolt af sér fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun.vísir/hanna
Arna Ýr og Egill Trausti.vísir/hanna

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×