Varð fimm að bana er hann ók á móti umferð Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. október 2016 19:53 Frá slysstað Vísir/Ap
Maður sem ók á móti umferð á hraðbraut í Vermont í Bandaríkjunum í gær er talinn hafa orðið 5 að bana með háskalegu ökulagi sínu. Þá slösuðust einnig fjölmargir og eignatjón var mikið. Til að mynda kviknaði í tveimur bílum. Fjölmiðlar vestanhafs greina frá því að neyðarlínunni hafi borist símtöl frá óttaslegnum vegfarendum í gærkvöldi sem greindu frá bifreið sem æki á öfugum vegarhelmingi. Lögreglumenn hófu þá strax leit að bifreiðinni en þeim tókst ekki að hafa hendur í hári ökumannsins áður en hann hafði ekið á annan bíl. Þegar lögreglumenn komu á slysstað hófust þeir strax handa við að slökkva eld sem komið hafði upp og bjarga konu sem sat föst í öðru bílflakinu. Meðan þeir athöfnuðu sig greip ökumaðurinn tækifærið og settist undir stýri lögreglubílsins sem komið hafði á vettvang og ók á brot - aftur á móti umferð. Þó svo að ekki sé búið að staðfesta að sami maður hafi verið að verki í báðum tilvikum telja lögreglumenn vestra það mjög líklegt. Maðurinn ók lögreglubílnum alls á sjö aðrar bifreiðar áður en hann staðnæmdist að lokum. Hann var handtekinn á staðnum. Sem fyrr segir létu fimm manns lífið og fjöldi fólks var færður á sjúkrahús til aðhlynningar.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Fleiri fréttir Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Sjá meira