Það er eftir Íslandi tekið Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 27. september 2016 11:30 Kvennakór Reykjavíkur keppti í fjórum flokkum af fimm í alþjóðlegri kórakeppni í Lloret De Mar og fékk gulleinkunn í þeim öllum. „
Við kepptum í kirkjutónlist, þjóðlagatónlist, poppi og katalónskri tónlist. Tókum poppflokkinn bara til gamans og urðum í 2. sæti. Árangurinn í keppninni allri fór langt fram úr okkar björtustu vonum og er stór rós í okkar hnappagat.“ Þetta segir Rósa Benediktsdóttir, hún er formaður Kvennakórs Reykjavíkur, sem tók nýlega þátt í kórakeppni í Lloret de Mar á Spáni og fékk gullviðurkenningar í öllum flokkum sem hann keppti í. Það eru samt ekki gullverðlaun að sögn Rósu sem útskýrir hvernig fyrirkomulagið er í svona keppnum. „Ef kór fær milli 80 og 100 stig í einhverjum flokki þá er gefin gullviðurkenning og svo raðast í sæti innan hvers flokks. Við náðum 2., 3. og 4. sæti í þremur af þessum fjórum flokkum.“ Hún segir fjölmarga kóra hafa tekið þátt, sumir þeirra hafi atvinnu af söng. „Þetta var hörð keppni, flottir kórar frá fjórtán löndum, kvennakórar, karlakórar, blandaðir kórar, ungmennakórar og að minnsta kosti einn barnakór. Hver kór söng sína lotu fyrir framan alþjóðadómnefnd, skipaða doktorum og prófessorum, meðal annars frá Rússlandi, Tékklandi og Íslandi. Hörður Áskelsson, organisti Hallgrímskirkju og stjórnandi Mótettukórsins, var í dómnefndinni. Mótettukórinn hefur einn íslenskra kóra tekið þátt í þessari keppni áður og fram til þessa árs hafði hann staðið sig best allra og hlotið Grand Prix verðlaun. Það er eftir Íslandi tekið.“ Í kórnum eru 46 konur á aldrinum 30 til rúmlega sjötugs. Stjórnandi er hin ungverska Ágota Joó. Um undirleik sér Vilberg Viggósson, eiginmaður hennar. „Ágota hefur þennan austurevrópska metnað, hún er mjög fær og vakti mikla athygli úti fyrir öguð vinnubrögð,“ segir Rósa. „Svo reyndar sungum við líka á tónleikum í dómkirkjunni í Barselóna. Vorum einn þriggja kóra sem voru valdir til að taka þátt í þeim tónleikum.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. september 2016.
Menning Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Áskorun Sheeran bað aðdáendur afsökunar Tónlist Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Fleiri fréttir Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira