Braust inn í íbúð í Vestmannaeyjum og lagði til íbúa með klaufhamri Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. ágúst 2016 15:42 Maðurinn er í mikilli fíkniefnaneyslu, svo mikilli að haft er eftir móður hans í upplýsingaskýrslu lögreglu í mars "að hún skilji hann ekki þegar hann talar vegna vímuástands, hann sé þvoglumæltur og í alvarlega annarlegu ástandi.“ Vísir/GVA
Karlmaður um tvítugt hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald af Héraðsdómi Suðurlands eftir að hafa ráðist að tveimur mönnum vopnaður hamri í Vestmannaeyjum. Brotaferill unga mannsins er afar langur sé tekið tillit til ungs aldurs hans. Hann mun vera á kafi í neyslu þar sem læknadóp er fyrirferðamikið. Maðurinn braust ásamt þremur öðrum mönnum inn í íþróttamiðstöðina í Vestmannaeyjum aðfaranótt miðvikudags í síðustu viku. Skemmdir urðu ekki miklar en þó ein rúða brotin, öryggisgler sem skilur að afgreiðslu og íþróttasalinn. RÚV greindi fyrst frá. Tveimur dögum síðar brutust þrír þeirra inn á nokkrum stöðum í Vestmannaeyjum og voru svo í íbúð í parhúsi á Heimaey. Þar fór ekki betur en svo að maðurinn greip til klaufhamars og lamdi félaga sinn. Í framhaldinu braust hann inn í næstu íbúð og réðst á ótengdan aðila.Síbrotamaður þrátt fyrir ungan aldur Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum má telja mildi að báðir mennirnir sluppu með minniháttar meiðsli. Maðurinn situr í gæsluvarðhaldi vegna almannahagsmuna en hann þykir hættulegur samfélagi sínu. Sami maður var einnig úrskurðaður í gæsluvarðhald í mars en þá hafði lögregla fjölda mála á hendur manninum til rannsóknar. Þeirra á meðal voru fimm líkamsárásir, ein í mars þar sem hann á að hafa stappað á höfði manns sem hann réðst á. Átti hann að mæta fyrir dóm nú á mánudaginn vegna þeirra mála en var ekki í ástandi til að svara fyrir sig. Maðurinn er í mikilli fíkniefnaneyslu, svo mikilli að haft er eftir móður hans í upplýsingaskýrslu lögreglu í mars „að hún skilji hann ekki þegar hann talar vegna vímuástands, hann sé þvoglumæltur og í alvarlega annarlegu ástandi.“
Tengdar fréttir Síbrotamaður í gæsluvarðhald grunaður um fimm líkamsárásir Sætir gæsluvarðhaldi til 8. apríl næstkomandi. 21. mars 2016 22:50 Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent Fleiri fréttir Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Sjá meira
Síbrotamaður í gæsluvarðhald grunaður um fimm líkamsárásir Sætir gæsluvarðhaldi til 8. apríl næstkomandi. 21. mars 2016 22:50