Fótbolti

Sjáðu mörkin sem skutu Viðari á topp markalistans

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Viðar Örn skorar og skorar.
Viðar Örn skorar og skorar. mynd/malmö
Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson fer hreinlega á kostum með sænska liðinu Malmö þessa dagana.

Hann skoraði tvö mörk fyrir liðið í gær er það vann Örebro, 3-0.

Viðar Örn er þar með orðinn markahæstur í Svíþjóð með tólf mörk eða tveimur fleiri en næsti maður.

Það sem meira er þá er Malmö á toppi deildarinnar.

Sjá má mörk Viðars Arnar frá því í gær hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×