Splæsti í þriðjudagstilboð Dominos í hverri einustu viku í heilt ár Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 3. ágúst 2016 20:15 Hafliði er mikill pítsumaður en pítsa er þó ekki uppáhalds maturinn hans heldur Hlölli. Vísir/Guðmundur Snær „
Ég kom heim af Þjóðhátíð í fyrra og pantaði mér pítsu á þriðjudeginum. Það var bara svo hentugt,“ segir Hafliði Örn Ólafsson tölvunarfræðingur. Síðan þá hefur ekki liðið þriðjudagur án þess að Hafliði slái á þráðinn til Dominos og panti sér eitt þriðjudagstilboð. „Miðstærð af pítsu með þremur áleggstegundum á þúsund kall.“ Eins og öllum hlýtur að vera ljóst þá er Hafliði mikill pítsukall en hann segir daginn í gær hafa verið súrsætan því að á sama tíma og hann fagnaði þessum merkilega áfanga, að hafa keypt þriðjudagstilboð á Dominos í hverri viku í heilt ár, kvaddi hann sambýlismann sinn. „Ég hef verið að leigja út eitt herbergi. Hann fór oft með mér á Dominos en þó ekki alveg jafnoft og ég. En hann Þórarinn var dyggur viðskiptavinur.“ Hafliði fer nánast ekki á aðra pítsustaði enda er Dominos í Lóuhólum steinsnar frá heimili hans. „Ég bý í Dúfnahólum, alveg við hliðina á staðnum. Þannig að ég rölti bara yfir, rétti seðilinn og labba út.“ Hann segir að einn starfsmannanna, ung kona, þekki hann meira að segja. „Hún segir: „Ert þú ekki Hafliði?“ og réttir mér pítsuna mína,“ segir Hafliði og hlær en hann segist þó ekki ganga svo langt að líkja staðnum við barinn í hinni vinsælu þáttaröð Staupasteinn eða Cheers. Cheers var í þáttunum barinn „þar sem allir þekkja nafnið þitt“ eins og fram kom í upphafslagi þáttanna. En hvernig pítsa varð fyrir valinu í gær? „Ég passaði mig að halda í hefðina í gær af því að þetta var sérstakt tilefni, fékk mér með pepperóní, beikoni og piparosti. Ég pantaði mér það upphaflega alltaf en svo fór það að verða smá þreytt og þá fór ég að prófa eitthvað annað.“ Hann segist þó aldrei sleppa pepperóníinu. Hafliði segir þriðjudagstilboðskaupin ekkert sérstakt metnaðarmál hjá sér og að það verði að koma í ljós hvort að hann nái öðru árinu. „Ég fattaði þetta fyrir svona þremur mánuðum, að ég hafði ekki misst úr þriðjudag, og þá ákvað ég að ná í það minnsta heilu ári. Svo erum við í samstarfi við Dominos, við sem erum að skipuleggja Hringinn HRingurinn er tölvuleikjamót í hinum ýmsu tölvuleikjum], þannig að ég kem til með að borða Dominos alla næstu helgi líka.“
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla ekki heima þegar hann mætti skríðandi eftir tólf daga ferðalag Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira