Taskan sem bjargar málunum Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 8. ágúst 2016 10:47 Rakel Karlsdóttir, vinnur nú af fullum krafti við að koma vörunum sínum á markað. Mynd/Rakel Karlsdóttir
Taskan “The Period Pouch” er eins og verkfærataska, hún inniheldur allt það sem þú þarft á að halda þegar þú ert á blæðingum, og hentar einstaklega vel fyrir stelpur sem eru að byrja á túr eða eru nýbyrjaðar, taskan hjálpar þeim að hafa stjórn á ástandinu,“ segir Rakel Karlsdóttir, hönnuður en hún er að setja á laggirnar vörur sem aðstoða konur þegar Rósa frænka kemur óvænt í heimsókn. Rakel ólst upp hér á Íslandi umkringd hestum og íslenskri náttúru. Árið 2000 var hún valin Fordfyrirsætan og í kjölfarið flutti hún til London, Mílanó og Parísar þar sem hún starfaði sem fyrirsæta. „Ég hef alltaf verið ævintýragjörn stelpa. Eftir að hafa ferðast mikið og unnið fyrir framan myndavélina, ákvað ég að flytja til Kaupmannahafnar og fara í nám. Ég tók byggingarfræðina, arkitektinn og hluta af hönnun. Eftir námið hef ég unnið sem arkitekt og hönnuður hjá Johannes Torpe Studios hér í Kaupmannahöfn. Síðustu mánuði hef ég verið að vinna að minni eigin hönnun LAVA,“ segir Rakel, en nú þegar hefur hún hannað þrjár vörur sem væntanlegar eru á markaðinn.En hvernig kviknaði hugmyndin? „Þetta byrjaði allt þegar ég var í hestaferðalagi heima á Íslandi. Hver þekkir ekki ástandið þegar þú þarft að skipta um bindi eða túrtappa og það er engin ruslatunna nálægt þér, ekki geturðu hent þessu út í náttúruna. Þegar ég lenti eitt sinn sjálf í þessum aðstæðum, kviknaði sú hugmynd að hanna lausn á þessu, í kjölfarið kom “The Period Bag” eða plastpokinn, en hann er hannaður sérstaklega fyrir þetta vandamál. Veskið kom strax á eftir pokanum, og það inniheldur allar þær vörur sem þú persónulega notar. Á töskunni er teygur sem þú auðveldlega getur bundið utanum lærin svo þú þurfir ekki að setja töskuna á skítugt gólf. Þegar hugmyndin var komin vel af stað ákvað ég að hanna “The WetWipes” sem eru blautþurrkur án ilmefna og alkóhóls, þær eru hugsaðar til notkunar ef þú ert ekki nálægt hreinu vatni,“ segir Rakel. LAVA, er ekki einungis ætlað til framleiðslu á vörum, heldur vinnur Rakel að því að snúa við þeirri skömm sem konur bera með sér varðandi blæðingar. „Af hverju erum við að læðast á klósettið eins og enginn megi sjá okkur, eða pískra þegar við spyrjum vinkonur hvort þær séu með auka túrtappa á sér sem maður getur fengið lánað. Ég er alveg viss um að LAVA geti hjálpað stelpum með að komast yfir þessa feimni og aðstoða stelpur við að fá meira sjálfstraust þegar þær fara á túr. Svo er líka bara frábært ef þú hefur fulla stjórn á aðstæðum,“ segir Rakel. LAVA mun fara á Kickstarter 1. September 2016, en það er síða á netinu sem hjálpar nýjum hönnuðum að komast af stað. „Eftir Kickstarter, þá get ég sett fyrstu framleiðsluna í gang og þá fara hjólin að rúlla, planið er að vinna í fullu starfi í LAVA og byggja fyrirtækið upp, með það að markmiði að hjálpa stelpum og konum að byggja upp sjálfstraust,“ segir Rakel full tilhlökkunar yfir framhaldinu.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 8. ágúst.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira