Þriðji Guðjohnsen ættliðurinn í Val? Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. júlí 2016 14:00
Sveinn Aron Guðjohnsen, leikmaður HK, er á leið í Pepsi-deildarlið Vals að því fram kemur á fótbolti.net en hann er ekki með KSÍ samning við HK og fá Valsmenn hann því án greiðslu. Sveinn Aron er elsti sonur Eiðs Smára Guðjohnsen sem spilaði með Val fyrir 22 árum síðan. Sextán ára gamall Eiður Smári skoraði sjö mörk í 17 leikjum fyrir Val í efstu deild áður en hann var seldur út. Gangi félagaskiptin í gegn verður Sveinn Aron þriðji Guðjohnsen ættliðurinn sem spilar fyrir Val en afi hans, Arnór Guðjohnsen, spilaði fyrir Hlíðarendafélagið þegar hann kom heim úr atvinnumennsku árið 1998. Arnór spilaði 41 leik fyrir Val í tveimur efstu deildum Íslandsmótsins og skoraði 22 mörk. Hinn 18 ára gamli Sveinn Aron hefur spilað frábærlega fyrir HK í Inkasso-deildinni. Í gær skoraði hann sitt fimmta mark í deildinni þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Huginn í Kórnum. Sveinn Aron er í heildina búinn að skora fimm mörk í tíu leikjum og er ásamt nokkrum öðrum markahæstur í Inkasso-deildinni. Sveinn Aron er einn af efnilegustu leikmönnum landsins en hann á að baki níu leiki fyrir U17 ára landsliðið og þrjá leiki fyrir U19.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Tapaði titlinum í lokabeygjunni Sport Fleiri fréttir Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Sjá meira