Sveinbjörg Birna segist engar reglur hafa brotið og snýr aftur Jakob Bjarnar skrifar 30. júní 2016 13:54 Sveinbjörg Birna tók sér hlé vegna Panamaskjala en er nú snúin til baka á ný.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir hefur nú tilkynnt að hún ætli sér að snúa aftur í borgarstjórn Reykjavíkur. Sveinbjörg Birna, sem er oddviti Framsóknarmanna í Reykjavíkurborg, óskaði eftir tímabundnu leyfi frá störfum sínum, meðan yfirferð á hagsmunaskráningu borgarfulltrúa stóð.Hlé vegna Panamaskjalanna Nafn Sveinbjargar Birnu er eitt þeirra nafna sem skráð er í Panama-skjölunum svonefndu; hún er skráð fyrir tveimur félögum í umsjá panamísku lögfræðistofunnar Mossack Fonseca; 7Callinvest sem skráð er á Tortóla og Ice 1 Corp sem var skráð á Panama. Í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í kjölfar þess að það komst sagði að hún teldi nauðsynlegt að víkja svo „borgarfulltrúar Framsóknar og flugvallavina geti áfram veitt meirihluta borgarstjórnar nauðsynlegt aðald.“ En, nú virðist tekið að fenna í sporin og nú liggur niðurstaðan fyrir. „Í úttekt innri endurskoðanda og regluvarðar er staðfest að mér hafi ekki borið að skrá aflandsfélög sem ég tengdist á árunum 2007-9 á skrá um fjárhagslega hagsmuni borgarfulltrúa eða innherjaskrá, enda hafi þau verið afskráð á árinu 2009-10. Á árunum 2009-10 var ég með lögheimili og skattalegt heimilisfesti í Luxembourg,“ segir Sveinbjörg Birna í yfirlýsingu og boðar komu sína á ný.Grófu undan tiltrú almennings Í yfirlýsingunni segir jafnframt: „Í úttekt innri endurskoðanda og regluvarðar kemur fram að á árinu 2014 hafi ég í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti tilkynnt regluverði um þrjú nánar tiltekin einkahlutafélög sem fjárhagslega tengda aðila. Aftur á móti hafi mér jafnframt borið að tilkynna um tengsl mín við umrædd félög á skrá þeirri sem skrifstofa borgarstjórnar heldur um fjárhagslega hagsmuni.“ Júlíus Vífill Ingvarssonar sagði sig frá borgarfulltrúastöðu sinni en hann og Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir „sýndu litla borgaralega ábyrgðakennd og grófu undan tiltrú almennings á kjörnum fulltrúum í Panamamálinu svokallaða,“ sagði í harðorðri niðurstöðu siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna málsins.
Tengdar fréttir Sveinbjörg Birna fer í frí ef yfirferð um hagsmunaskráningu verður ekki lokið í júní Tengist aflandsfélögum í skattaskjóli. 5. apríl 2016 14:24 Gagnrýnir niðurstöðu siðanefndar Borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina gagnrýnir niðurstöðu siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aflandsfélög. Hún segir að í niðurstöðunni sé vegið harkalega að Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörnsdóttur oddvita flokksins. Sveinbjörg óskaði í dag eftir áframhaldandi leyfi frá störfum vegna málsins. 21. júní 2016 18:45 Sýndu litla borgaralega ábyrgðakennd og grófu undan tiltrú almennings á kjörnum fulltrúum Siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur skilað harðorðri skýrslu í tengslum við mál Júlíusar Vífils og Sveinbjargar Birnu. 20. júní 2016 19:00 Bein útsending úr Ráðhúsinu: Júlíus Vífill segir af sér Fundur borgarstjórnar hefst klukkan tvö. 5. apríl 2016 13:54 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir „Það þarf ekki nema einn sígarettustubb til þess að kveikja í öllu“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira
Sveinbjörg Birna fer í frí ef yfirferð um hagsmunaskráningu verður ekki lokið í júní Tengist aflandsfélögum í skattaskjóli. 5. apríl 2016 14:24
Gagnrýnir niðurstöðu siðanefndar Borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina gagnrýnir niðurstöðu siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aflandsfélög. Hún segir að í niðurstöðunni sé vegið harkalega að Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörnsdóttur oddvita flokksins. Sveinbjörg óskaði í dag eftir áframhaldandi leyfi frá störfum vegna málsins. 21. júní 2016 18:45
Sýndu litla borgaralega ábyrgðakennd og grófu undan tiltrú almennings á kjörnum fulltrúum Siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur skilað harðorðri skýrslu í tengslum við mál Júlíusar Vífils og Sveinbjargar Birnu. 20. júní 2016 19:00
Bein útsending úr Ráðhúsinu: Júlíus Vífill segir af sér Fundur borgarstjórnar hefst klukkan tvö. 5. apríl 2016 13:54