Menning

Allir sigurvegarar kvöldsins: Njála hlaut tíu Grímuverðlaun og sló met

Bjarki Ármannsson skrifar
Njála hlaut ellefu tilnefningar og vann til tíu verðlauna.
Njála hlaut ellefu tilnefningar og vann til tíu verðlauna. Mynd/Grímur Bjarnason
Leiksýningin Njála hlaut heil tíu verðlaun þegar Gríman - íslensku sviðlistaverðlaunin voru afhent í 14. skiptið við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Engin sýning hefur hlotið svo mörg Grímuverðlaun frá því að hafið var að afhenda þau árið 2003.

Njála var sett á svið í Borgarleikhúsinu með Íslenska dansflokknum í leikgerð Mikaels Torfasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar. Meðal annars hlaut sýningin verðlaun sem sýning ársins og leikrit ársins. Sýningin hlaut ellefu tilnefningar.

Stefán Baldursson, fyrrverandi þjóðleikhússtjóri og óperustjóri Íslensku óperunnar, hlaut Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi.

Bestu leikarar í aðalhlutverki voru þau Hilmir Snær Guðnason, fyrir Hver er hræddur við Virginíu Woolf?, og Brynhildur Guðjónsdóttir, fyrir Njálu. Hér fyrir neðan má sjá alla verðlaunahafa kvöldsins.

Brynhildur Guðjónsdóttir var valin besta leikkonan í aðalhlutverki fyrir frammistöðu sína í Njálu.Mynd/Grímur Bjarnason
Sýning ársins 2016 

Njála í leikgerð Mikaels Torfasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar.

Sviðsetning Borgarleikhúsið og Íslenski dansflokkurinn.

Leikrit ársins 2016   

Njála í leikgerð Mikaels Torfasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar.

Sviðsetning Borgarleikhúsið og Íslenski dansflokkurinn.

Leikstjóri ársins 2016   

Þorleifur Örn Arnarsson fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.

Leikari ársins 2016 í aðalhlutverki 

Hilmir Snær Guðnason fyrir Hver er hræddur við Virginíu Woolf? í sviðsetningu Borgarleikhússins.

Leikkona ársins 2016 í aðalhlutverki 

Brynhildur Guðjónsdóttir fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.

Leikari ársins 2016 í aukahlutverki 

Hjörtur Jóhann Jónsson fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.

Leikkona ársins 2016  í aukahlutverki 

Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Auglýsingu ársins í sviðsetningu Borgarleikhússins.

Leikmynd ársins 2016   

Ilmur Stefánsdóttir fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.

Búningar ársins 2016   

Sunneva Ása Weisshappel fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.

Lýsing ársins 2016  

Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.

Tónlist ársins 2016   

Árni Heiðar Karlsson og Valdimar Jóhannsson fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.

Hljóðmynd ársins 2016   

Valdimar Jóhannsson og Baldvin Þór Magnússon fyrir Kafla 2: Og himinninn kristallast í sviðsetningu Íslenska dansflokksins.

Elmar Gilbertsson var valinn söngvari ársins, í annað sinn á ferlinum.Vísir/Stefán
Söngvari ársins 2016  

Elmar Gilbertsson fyrir Don Giovanni í sviðsetningu Íslensku óperunnar.

Dans – og sviðshreyfingar ársins 2016

Erna Ómarsdóttir fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.

Dansari ársins 2016   

Aðalheiður Halldórsdóttir fyrir Persóna – What a feeling í sviðsetningu Íslenska dansflokksins.

Danshöfundur ársins 2016   

Inga Huld Hákonardóttir og Rósa Ómarsdóttir fyrir The Valley í sviðsetningu Menningarfélagsins Tvíeindar, Reykjavik Dance Festival og Tjarnarbíós.

Útvarpsverk ársins 2016   

Fylgsnið eftir Hávar Sigurjónsson. Leikstjórn Hilmar Jónsson, framleiðandi Útvarpsleikhúsið á RÚV. 

Sproti ársins 2016  

Hrafnhildur Hagalín og Björn Thors fyrir Flóð í sviðsetningu Borgarleikhússins.

Barnasýning ársins 2016  

Vera og vatnið eftir Tinnu Grétarsdóttur, Snædísi Lilju Ingadóttur, Guðnýju Hrund Sigurðardóttur og Sólrúnu Sumarliðadóttur í sviðsetningu Bíbí og blaka.

Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands 2016  

Stefán Baldursson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×