Dæmdur fyrir að hrinda manni niður tröppur Jóhann Óli Eiðsson skrifar 1. júní 2016 19:54 Frá Ísafirði vísir/pjetur
Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Vestfjarða 30. maí síðastliðinn dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás fyrir utan kaffihúsið Húsið á Ísafirði. Manninum var gefið að sök að hafa í ágúst í fyrra ráðist að öðrum manni, hrifsað í hann og kippt honum niður með þeim afleiðingum viðkomandi féll niður tröppur fyrir utan staðinn. Brotaþoli hlaut hruflsár á enni, nefi og beinbrot á hægri hendi. Brotaþoli gat ekki bent á hver það var sem hrinti honum niður tröppurnar þar sem hinn sakfelldi, sem er skipverji á skipi sem lá við bryggju á Ísafirði, kom aftan að honum og hrinti honum niður fyrirvaralaust. Sakborningur málsins mundi ekkert eftir atvikum kvöldsins sökum ölvunar. Við skýrslutöku hjá lögreglu kannaðist hann ekki við að hafa farið á Húsið umrætt kvöld eða að hafa hrint brotaþola. Sjóarinn neitaði því ávallt að hafa hrint manninum niður tröppurnar. Dómari málsins féllst hins vegar ekki á það þar sem fjöldamörg vitni töldu sig hafa séð téðan sjóara hrinda manninum. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem maðurinn hlýtur dóm fyrir líkamsárás. Í upphafi þess var hann dæmdur fyrir árás sem átti sér stað í Keflavík. Sökum hennar var honum gerður hegningarauki að þessu sinni. Maðurinn hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm sem fellur niður haldi hann skilorð í tvö ár. Þá var honum gert að greiða fórnarlambinu 300.000 krónur í miskabætur og allan málskostnað, 671.400 krónur.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira