Allir frambjóðendurnir með sama nafn Bjarki Ármannsson skrifar 4. júní 2016 14:50 Frá Rúmeníu. Vísir/AFP
Kjósendur í komandi bæjarstjórnarkosningum í rúmenska bænum Draguseni gætu fengið mjög ruglingslegan atkvæðaseðil í hendurnar á morgun. Þannig er mál með vexti að allir þrír sem bjóða sig fram til bæjarstjóra bera sama nafn.Rúmenski miðillinn Jurnajul greinir frá og breska ríkisútvarpið fjallar einnig um málið. Sitjandi bæjarstjóri, Vasile Cepoi, sækist eftir sínu fjórða kjörtímabili en mótframbjóðendur hans tveir, Vasile Cepoi og Vasile Cepoi, bjóða sig báðir fram í fyrsta sinn. Mennirnir þrír eru ekki skyldir en eftirnafn þeirra ku vera algengt á svæðinu. Þó telur bæjarstjórinn að þetta sé ekki bara stórmerkileg tilviljun, heldur kosningabrella. Nafnar hans bjóða sig fram fyrir hægrisinnaða flokka en hann er sjálfur vinstri-miðjumaður. „Mig grunaði að flokkarnir myndu gera þetta,“ segir Cepoi bæjarstjóri og grípur til myndlíkingar úr spænska boltanum. „Þegar Messi spilar í fótbolta, spilar allt hitt liðið saman gegn honum. Þeir eru að gera það gegn mér. Ég er Messi þessara bæjarstjórnarkosninga.“ Hinir tveir neita því að brögð séu í tafli. Bæjarstjórinn er þó eldri en tvívetur í þessum efnum og hefur þegar gripið til ráðstafana. Nefnilega að bæta viðurnefni sínu, Lica, við nafn sitt á kjörseðlinum. Hvernig sem fer, er allavega hægt að slá því föstu að Vasile Cepoi verður sigurvegari kosninganna á morgun.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Fleiri fréttir Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Sjá meira