Almennir borgarar stráfelldir í Aleppo Samúel Karl Ólason skrifar 29. apríl 2016 20:49 Aleppo hefur orðið mjög illa úti. Vísir/AFP
Stjórnarher Sýrlands og uppreisnarmenn hafa gert fjölmargar árásir í Aleppo í Sýrlandi í dag. Uppreisnarmenn gerður stórskotaárás á mosku á meðan bænir stóðu yfir og stjórnarherinn hefur gert fjölmargar loftárásir. Minnst 200 almennir borgarar hafa fallið í borginni á síðastliðinni viku. Sameinuðu þjóðirnar segja báðar fylkingar sýna lífum borgara lítilsvirðingu og friðarviðræður sem höfðu staðið yfir í Genf í tvo mánuði virðast vera úr myndinni. Borgin hefur verið miðpunktur umfangsmikilla átaka um nokkurt skeið en þar halda enn til um 250 þúsund manns á yfirráðasvæði uppreisnarmanna. Þá er stjórnarherinn sagður undirbúa stórsókn gegn uppreisnarmönnum. Eftirlitsaðilar vara við því að birgðaleið þessara íbúa gæti lokast komi til slíkrar sóknar. Í samtali við AP fréttaveituna sagði aðgerðasinni að íbúar væru þegar byrjaðir að flýja Aleppo. Hann sagði að ef herinn hæfi umsátur um borgina myndu íbúar hennar svelta á innan við mánuði. Áður en borgarastyrjöldin hófst var Aleppo stærsta borg Sýrlands og miðpunktur verslunar. Borgin hefur komið verulega illa út í átökunum, eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi sem BBC birti fyrir um mánuði síðan.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Sjá meira