Innlent

Flagga í Hrunamannahreppi til heiðurs nýjum forsætisráðherra

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Sigurður Ingi er Arsenal-maður og fylgist mikið með íþróttum. Þessi mynd var tekin af honum þegar hann tók nýja pökkunarvél Mjólkursamsölunnar á Selfossi í gagnið í október 2013.
Sigurður Ingi er Arsenal-maður og fylgist mikið með íþróttum. Þessi mynd var tekin af honum þegar hann tók nýja pökkunarvél Mjólkursamsölunnar á Selfossi í gagnið í október 2013. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
„Ég hef trú á því að það verði flaggað á hverjum bæ í dag enda erum við ákaflega stolt af því að nýr forsætisráðherra sé búsettur í okkar sveitarfélagi,“ segir Ragnar Magnússon, oddviti Hrunamannahrepps.

Sigurður Ingi Jóhannsson, nýr forsætisráðherra, býr í Syðra Langholti og keyrir daglega í vinnu til Reykjavíkur.

„Sigurður Ingi hefur sýnt það í verkum sínum að hann er fullfær í nýja starfið og á eftir að standa sig vel. Hann er víðsýnn, skynsamur og eldklár,“ bætir Ragnar við.

Ragnar Magnússon, oddviti Hrunamannahrepps og bóndi í Birtingaholti.Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Arsenal-maður út í gegn

Ragnar segir að Sigurður Ingi hafi mikinn áhuga á íþróttum.

„Já, hann er Arsenal-maður út í gegn eins og ég og fylgist vel með boltanum. Á sínum yngri árum spilaði hann mikið knattspyrnu, körfubolta og stóð sig líka vel í frjálsum“, segir Ragnar.

Tvö af systkinum nýja forsætisráðherrans búa í Hrunamannhreppnum en það eru þau Arnfríður bóndi í Dalbæ og Páll bóndi í Núpstúni. Þriðja systkinið býr í Reykjavík.

Sigurður Ingi á þrjú börn og fjögur stjúpbjörn með núverandi eiginkonu sinni, Elsu Ingjaldsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.

„Ég hef enga trú á því að Sigurður Ingi og Elsa flytji til Reykjavíkur þó hann sé orðinn forsætisráðherra, hann er allt of mikill sveitamaður í sér til þess,“ segir oddviti Hrunamannahrepps.

.​


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×