Lýsir því hvernig hann smyglaði Ali G inn á Óskarinn: „Laug að þeim að ég væri með rosalegan niðurgang“ Stefán Árni Pálsson skrifar 9. mars 2016 13:15 Sacha Baron Cohen var hjá Howard Stern á dögunum. vísir/getty
Sacha Baron Cohen mætti sem Ali G á Óskarsverðlaunahátíðina sem afhent voru í Los Angeles í síðustu viku. Hann gerði töluvert grín að allri umræðu um kynþáttafordóma hjá akademíunni þegar hann afhenti verðlaun með leikkonunni Olivia Wilde. Cohen var gestur í þætti Howard Stern á dögunum og lýsti þar hvernig hann kom Ali G inn á svæðið. Það hafði verið tekið skýrt fram við hann fyrir verðlaunaafhendinguna að hann mætti ekki vera í karakter á Óskarnum. „Ég var nokkuð stressaður þar sem umræðan um mismunandi kynþætti hafði verið aðal umræðuefnið fyrir Óskarsverðlaunin í ár,“ sagði Cohen í þætti Stern.„Þetta er mjög fyndið“ „Ég ákvað því að taka Ali G með mér. Þá er ég í karakter sem heldur í raun og veru að hann sé þeldökkur,“ sagði Cohen sem ræddi við grínistann Dave Chappelle rétt áður en hann fór á svið og fékk ráðleggingar hjá honum. „Ég sagði honum fyrstu setninguna mína og spurði hvort þetta yrði nú ekki í lagi. Hann svaraði; þetta er mjög fyndið, hentu þér upp á svið og gerðu þetta.“ Cohen fór því næst inn á klósett með eiginkonu sinni í fjörutíu mínútur og hún varð að setja skeggið á hann og aðstoða hann við að setja kappann í búninginn fræga. Aðstandendur Óskarsins voru á þeim tíma að leita af Cohen út um allt. „Ég fékk upplýsingafulltrúann minn til að segja þeim að ég væri með rosalegan niðurgang. Síðan þegar ég geng að sviðinu held ég fyrir andlitið á mér svo enginn myndi sjá skeggið. Síðan rétt áður en ég geng á sviðið með Olivia Wilde tilkynni ég henni að ég ætli að vera Ali G og hendi því næst húfunni á mig og geng af stað.“
Tengdar fréttir Ali G fór á kostum á Óskarnum: „Af hverju er gengið alveg framhjá skósveinunum?“ Sacha Baron Cohen mætti sem Ali G á Óskarsverðlaunahátíðina sem afhent voru í Los Angeles í nótt. 29. febrúar 2016 13:30 Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Fleiri fréttir Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Sjá meira
Ali G fór á kostum á Óskarnum: „Af hverju er gengið alveg framhjá skósveinunum?“ Sacha Baron Cohen mætti sem Ali G á Óskarsverðlaunahátíðina sem afhent voru í Los Angeles í nótt. 29. febrúar 2016 13:30