Íslenski boltinn

Schoop æfir með OB | Útilokar ekki KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Andri Marinó
Jacob Schoop er kominn aftur til Danmerkur og er nú að æfa með OB, sínu gamla félagi, en hann er þó samningslaus.

Sjá einnig: Jacob Schoop æfir hjá MLS-liði Orlando City

Ekki er útilokað að Schoop fái samning hjá OB en þó er það ekki í plönum félagsins eftir því sem Jesper Hansen, yfirmaður íþróttamála hjá félaginu, sagði við bold.dk.

Schoop sagði í sjálfur í samtali við mbl.is í dag að hann útilokar ekki að snúa aftur í KR. „Það er ómögulegt að segja. Hlutirnir gerast svo hratt í fótboltanum,“ sagði Schoop.

Danski miðjumaðurinn byrjaði síðasta tímabil af miklum krafti hjá KR en það dró af honum eftir því sem leið á það. Hann skorðai alls tvö mörk í 26 leikjum í deild og bikar fyrir vesturbæjarliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×