Nauðgaði 17 ára stúlku: Taldi sig vera að upplifa martröð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. febrúar 2016 10:44 Maðurinn segist aldrei hafa fengið samþykki en eitt hafi leitt af öðru. Vísir/Getty
Fjölskipaður dómur Héraðsdóms Reykjaness telur hafið yfir skynsamlegan vafa að karlmaður hafi nauðgað sautján ára stúlku í apríl í fyrra. Var maðurinn dæmdur í tveggja ára fangelsi í lok janúar og þarf að greiða stúlkunni eina milljón króna í bætur. Stúlkan var gestur í samkvæmi og hafði lagt sig í rúm sökum ölvunar en hún hafði meðal annars kastað upp fyrr um kvöldið. Hún vaknaði í rúminu við það að maðurinn var inni í henni þvert á hennar vilja. Maðurinn neitaði sök en viðurkenndi að hafa kysst stúlkuna og klætt hana úr fötunum. Hann hafi ætlað að hafa við hana samfarir en ekki náð honum upp. Var ósamræmi í framburði mannsins í skýrslutöku hjá lögreglu og fyrir dómi hvað samskipti þeirra tveggja ræðir. Nauðgunin átti sér stað í heimahúsi þar sem stelpan var gestur. Hafði hún farið þangað að heimsækja strák sem hún var skotin í en sá var farinn í bæinn þegar stúlkuna bar að garði. Þar voru þó fyrir bróðir hennar, frændi hennar sem bjó í húsinu auk eins vinar þeirra og ákærða.Bróðirinn sagði strákunum að láta stúlkuna í friðiFyrir liggur að hinn dæmdi sýndi stúlkunni áhuga í samkvæminu og ræddu þau meðal annars um hagi sína. Segist stúlkan hafa sagt honum frá áhuga sínum á stráknum sem hún hefði ætlað að heimsækja. Þau hefðu farið afsíðis til að ræða það þar sem hún hefði reykt sígarettu en í framhaldinu orðið veik og kastað upp. Bróðir stúlkunnar hjálpaði henni á baðherberginu þar sem hún kastaði upp og bar inn í rúm þar sem hún sofnaði. Bróðir hennar segir hana hafa verið við það „að deyja“ og sagt hinum strákunum að láta hana í friði og leyfa henni að sofa. Sjálfur fór hann að sofa. Stúlkan segir manninn hafa lagst upp í rúm til hennar um nóttina og byrjað að kyssa hana. Hún hafi haldið að þar væri strákurinn sem hún væri hrifin af og kysst á móti en hætt um leið og hún áttaði sig á því hver var mættur. Þá hafi hann strokið henni um magann en hún aftur beðið hann um að hætta. Hann hafi spurt hana hvort hann mætti liggja hjá henni og hún gefið grænt ljós á það og farið að sofa.„Mig langaði þetta ekki“Næst hafi hún vaknað við það að maðurinn var inni í henni þvert gegn hennar vilja. Hún hafi í fyrst haldið að um martröð væri að ræða. Hún hafi sagt honum að hætta og neitað honum að halda áfram. Hún hafi náð að velta sér á hliðina um tíma en hann hafi rifið í læri hennar og haldið áfram. Stúlkan segist hafa verið svo hrædd að hún hafi hvorki öskrað né farið. Hann hafi haldið áfram að reyna að sannfæra hana um þetta en hún hafi loksins sagt harkalega að hún vildi þetta ekki og hann þá loksins hætt. Í framhaldinu kom einn íbúinn inn í herbergið og lýsir því þannig að stúlkan hafi verið grátandi og sagt: „Mig langaði þetta ekki, mig langaði þetta ekki.“ Íbúinn hafi í kjölfarið hent ákærða úr íbúðinni og svo huggað stúlkuna. Framburður ákærða var ólíkur við skýrslutöku hjá lögreglu og fyrir dómi. Neitaði hann að hafa farið inn í leggöng stúlkunnar en hefði þó haft frammi aðra kynferðislega burði. Honum hefði þó ekki fundist um nauðgun að ræða því hann hefði aldrei heyrt „hættu, nei, stopp eða eitthvað.“Brot á barnaverndarlögumDómurinn taldi ýmislegt misræmi í framburði ákærða í skýrslutöku hjá lögreglu og fyrir dómi. Taldi dómurinn misræmið draga úr trúverðugleika framburðar mannsins. Þá mat dómurinn frásögn stúlkunnar ítarlega og nákvæma og fá að nokkru stuðning vitna í málinu. Þótti því sannað svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði gerst sekur um nauðgun og brot á barnaverndarlögum en stúlkan var 17 ára þegar nauðgunin átti sér stað. Farið var fram á tvær milljónir króna í skaðabætur en héraðsdómur mat eina milljón króna hæfilegar bætur.Dóminn í heild má lesa hér.
Tengdar fréttir Móðir stúlkunnar í hópnauðgunarmálinu: Léttir og viðurkenning að málinu var áfrýjað "Ef það eru fimm þá er það nauðgun og ofbeldi. Ég myndi vilja sjá kvenmann gefa sig fram sem vill hafa þetta svoleiðis,“ segir Lilja Björnsdóttir. 18. desember 2015 16:28 Sýknudómur í nauðgunarmáli stendur óbreyttur Maður sem ákærður var fyrir nauðgun á sextán ára stúlku sýknaður. 4. febrúar 2016 17:06 Fær bætur vegna handtöku í nauðgunarmáli Maðurinn var sýknaður af fjögurra og hálfs árs nauðgunardómi. Hann fær bætur frá ríkinu vegna handtökunnar. 28. desember 2015 13:55 Mest lesið Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Innlent Fleiri fréttir Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Sjá meira
Móðir stúlkunnar í hópnauðgunarmálinu: Léttir og viðurkenning að málinu var áfrýjað "Ef það eru fimm þá er það nauðgun og ofbeldi. Ég myndi vilja sjá kvenmann gefa sig fram sem vill hafa þetta svoleiðis,“ segir Lilja Björnsdóttir. 18. desember 2015 16:28
Sýknudómur í nauðgunarmáli stendur óbreyttur Maður sem ákærður var fyrir nauðgun á sextán ára stúlku sýknaður. 4. febrúar 2016 17:06
Fær bætur vegna handtöku í nauðgunarmáli Maðurinn var sýknaður af fjögurra og hálfs árs nauðgunardómi. Hann fær bætur frá ríkinu vegna handtökunnar. 28. desember 2015 13:55