Vilja heilsuþjónustu á St. Jósefsspítala Sveinn Arnarsson skrifar 6. febrúar 2016 11:01 Lítið líf hefur verið í húsinu undanfarin ár. vísir/stefán
Teitur Guðmundsson, eigandi Heilsuverndar, skoðar nú þann möguleika að koma á heilsutengdri þjónustu á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði en húsnæðið hefur staðið autt í fjölda ára. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir engar formlegar viðræður hafa átt sér stað. „Við höfum verið með þreifingar og að skoða það að hefja starfsemi í húsnæðinu og meðal annars verið í samskiptum við Hafnarfjarðarbæ með það að markmiði að í því verði starfrækt heilbrigðisþjónusta. Það hefur verið stefnan að koma starfsemi í gang fyrir árslok á þessu merka níutíu ára afmæli húsnæðisins,“ segir Teitur. „Málin eru á viðkvæmu stigi og góðir hlutir gerast hægt. Hlutirnir hafa verið í ákveðinni bið undanfarið þar sem eignarhald á húsinu hefur verið til umræðu og ýmislegt fleira en við vonum að formlegar viðræður geti hafist fljótlega.“ Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvers konar heilbrigðistengd þjónusta verður starfrækt í húsnæðinu en ýmsir möguleikar hafa skotið upp kollinum. Eftir að Heilsumiðstöðin ehf. ákvað að rifta samningi sínum við Sjúkratryggingar um sjúkrahótel leitar nú Landspítalinn að lausn á vanda spítalans. Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir engar formlegar viðræður hafa farið fram milli bæjaryfirvalda og Teits Guðmundssonar. „Ég hef fengið frá honum tölvupóst um málið en engar ákvarðanir hafa verið teknar hjá stjórn bæjarins um að hefja formlegar viðræður. Þessi mál eru í stöðugri skoðun.“ Samþykkt liggur fyrir í bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar um að skipa starfshóp sem á að fara með málefni St. Jósefsspítala og móta tillögur um nýtingu á húsnæðinu. Sá starfshópur hefur ekki enn verið settur saman.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fleiri fréttir Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjá meira