Þegar aldurinn færist yfir rjátlast bráðlætið af manni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 23. janúar 2016 10:45 „Ég er í pólitíkinni núna en lít enn svo á að þessi opinberu störf séu hliðarspor frá búskapnum,“ segir Haraldur. Vísir/Anton „
Ég hef yfirleitt hlakkað til afmælisins míns, á tímbili kveið ég reyndar smávegis fyrir þessu en er búinn að jafna mig á því. Þetta er heilmikill áfangi, að verða fimmtugur. Það ná því ekki allir. Mér finnst stöðugt yngra fólk verða fimmtugt nú til dags,“ segir Haraldur Benediktsson alþingismaður um fimmtugsafmælið sem er í dag. Hann segir heilmikið afmælishald fyrirhugað en dagurinn byrji með fjósverkum og fundahöldum enda séu fáir frídagar hjá þingmönnum. En svo verði móttaka í Miðgarði, félagsheimili sem áður tilheyrði Innra-Akraneshreppi en nú Hvalfjarðarsveit. „Miðgarður er stutt frá heimilinu okkar í sveitinni bláu, Innnesinu,“ segir Haraldur sem býr ásamt fjölskyldu sinni á Vestra-Reyni við rætur Akrafjalls. Ferðu alltaf heim á kvöldin? „Já, já, í mikilli umferð getur það tekið um klukkutíma en þegar umferðin er létt er ég svona 40 til 45 mínútur. Ég er búinn að vera við störf í Reykjavík síðan 2004 og hef alltaf keyrt á milli. Reyndar hefur veður stundum stoppað mig og það færist í vöxt að veginum sé lokað en það tekur oftast ekki nema hálfan dag að bíða eftir að óveður gangi niður á Íslandi og þegar aldurinn færist yfir rjátlast bráðlætið af manni. Ég finn fyrir því.“ Haraldur kveðst taka þátt í bústörfunum heima. „Ég er í fjósinu um helgar, yfirleitt, og reyni að verða að einhverju liði hina dagana líka. En konan mín, Lilja Guðrún Eyþórsdóttir, er bóndinn. Hún hefur borið hitann og þungann af þessum rekstri í bráðum tólf ár. Nú erum við líka með tvo frábæra starfsmenn en lengi vorum við ekki með neina hjálp og þá var oft unnið á nóttunni.“ Hvar kynntust þið. „Við erum Hvanneyringar og náðum saman þar. Erum búin að vera par í 32 ár og eigum þrjú börn, Benediktu er að verða tvítug og er byrjuð í háskóla, Eyþór er fimmtán ára og svo er sjálfur formaður afmælisnefndar, Guðbjörg, sem er að verða átta ára. Hún ákvað að draga upp afmælisboðskort fyrir mig og textinn hófst svona: Pabbi hefur ákveðið að verða fimmtugur.“ Eins og landsmenn vita hefur Haraldur látið til sín taka á félagsmálasviðinu. „Ég dróst inn í félagsmál bænda fyrir tilviljun og svo hefur eitt leitt af öðru. Ég er í pólitíkinni núna en lít enn svo á að þessi opinberu störf séu hliðarspor frá búskapnum. Ég hef enn ástríðu fyrir búskap og er eins og hinir íslensku bændurnir, hluti af jörðinni.“ Ertu fæddur og uppalinn á Vestra-Reyni? Já, ég er fjórði ættliðurinn sem sit þá jörð. Við vorum sjö systkini fædd og ég eini bróðirinn í systra hópi. Það segir sig sjálft að maður komst ekki alltaf að til að tala. Þessvegna valdi ég mér vettvang þar sem fundarreglur gilda!“
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Fleiri fréttir Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Sjá meira