Puttar þaktir bleki í 20 ár Stefán Þór Hjartarson skrifar 5. september 2016 15:00 Jean Posocco hefur komið að útgáfu Neo-Bleks síðan í öðru tölublaði þess. Vísir/Anton Brink „
Sýningin er haldin vegna 20 ára afmælis Blek. Það hét fyrst Blek og breyttist síðan í Neo-Blek. Þarna til sýnis eru teikningar frá ýmsum teiknurum sem hafa teiknað í blaðinu: Hugleiki Dagssyni, mér, Inga Jenssyni, Kjartani Arnarsyni og fleiri. Í tilefni þess gaf ég út stærra blað en venjulega, 164 blaðsíður. Þetta eru íslenskar myndasögur og að hluta til erlendar, frá Frakklandi og blaðið kemur út í mjög takmörkuðu upplagi,“ segir Jean Posocco, einn af aðstandendum sýningarinnar ásamt Birni Vilhjálmssyni og Þorsteini S. Guðjónssyni, en hann var í óðaönn við að hengja upp myndir þegar blaðamaður náði tali af honum. Hazarblaðið Blek var fyrst gefið út á vegum Hins Hússins og spratt upp úr átaksverkefni fyrir unga atvinnuleitendur. „Ég kom inn í þetta frá og með öðru tölublaði en það var hann Björn Vilhjálmsson sem startaði þessu í Hinu Húsinu á sínum tíma, árið 1996. Hann fékk þarna fullt af teiknurum með sér, mest ungir menn sem vildu teikna og búa til blað. Ég kom inn í þetta dæmi ári seinna, þá hitti ég Björn óvart og í framhaldi af því bauð hann mér í Hitt Húsið til að ræða um myndasögugerð við þessa krakka. Ég bauð mig fram í að vera í ritstjórn þarna þetta kvöld og þannig hefur það verið síðan þá. Björn Vilhjálmsson var ábyrgðarmaður til 2004 og þá tók ég alfarið við því.“Glæsilega myndskreytt plakat auglýsir sýninguna. Mynd/Jean Posocco„Blaðið var fyrst gefið út einu sinni á ári og svo var tekin ákvörðun um að reyna að koma þessu út á þriggja eða fjögurra mánaða fresti. Markmiðið fyrst var að fá íslenska teiknara til að teikna í öll blöðin, en það tókst misjafnlega vel að fá teiknara í blaðið þannig að við brugðum á það ráð að kaupa erlent efni, frá Belgíu og Frakklandi, og það varð kikk í sölunni – fyrstu árin var Blek ekki í sölu neins staðar, bókabúðir vildu ekki fá þetta því að þetta var í undarlegri stærð og eitthvað þannig. Þetta var neðanjarðarútgáfa þangað til að ég breytti stærðinni í A4, þá gekk betur að koma þessu blaði í sölu og bókasöfnin urðu áskrifendur. Það er mikill áhugi á myndasögugerð í dag, það eru ofboðslega margir að teikna – bæði stelpur og strákar. Mér finnst gaman að Blek hafi verið hluti af stórri hræru sem margir tóku þátt í, líka Úlfhildur Dagsdóttir sem opnaði myndasögudeild á bókasafninu, það er margt í gangi.“ Jean gefur sjálfur út klassískar myndasögubækur eins og Ástrík, Viggó, Sval og Val og fleiri undir merkjum útgáfunnar Frosks. Fleiri upplýsingar um það má nálgast á vefnum myndasogur.is og hægt að skrá sig í áskrift á Neo-Bleki þar. Sýningin stendur nú yfir í Borgarbókasafni í Grófinni.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira