Sérstakt mansalsteymi hjá Vinnumálastofnun Nadine Guðrún Yaghi skrifar 8. ágúst 2016 07:00 Vinumálastofnun rannsakaði þrjú möguleg mansalsmál á fimm mánuðum frá nóvember til apríl. Fréttablaðið/Hanna „
Við trúum því að þetta sé skref í rétta átt og reynum að tryggja að þessi mál komist í viðeigandi farveg,“ segir Gísli Davíð Karlsson, lögfræðingur hjá Vinnumálastofnun, en stofnunin hefur komið upp sérstöku teymi sem sér um mansalsmál. Í teyminu starfa þrír starfsmenn sem sjá um að tryggja fræðslu fyrir starfsfólk stofnunarinnar. Það er gert til að starfsmenn hafi næga þekkingu til að taka eftir þeim atriðum sem þarf að sjá til að átta sig á hvort um fórnarlömb mansals er að ræða. Hins vegar ber teymið ábyrgð á því að taka við af starfsmönnum stofnunarinnar ef grunur vaknar um hugsanlegt fórnarlamb. „Hvort sem það er þá skjólstæðingur okkar eða til að mynda einstaklingur í atvinnuleit eða útlendingur sem starfar hjá atvinnurekanda á innlendum vinnumarkaði,“ segir Gísli Davíð.Gísli Davíð KarlssonFréttablaðið greindi frá því á dögunum að nýjar áherslur væru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en nú vinnur lögreglan í samstarfi við Europol sem lætur henni í té upplýsingar um helstu áherslur í löggæslu í Evrópu hverju sinni. Karl Steinar Valsson, tengifulltrúi Íslands hjá Europol, sagði að í dag væri mikil áhersla lögð á mansalsmál og er það meðal annars ástæðan fyrir því að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu setti upp sérstaka einingu sem sér um mansalsmál. Snorri Birgisson lögreglufulltrúi starfar í því teymi og segir það nú vinna náið með ýmsum stofnunum í mansalsmálum. Til að mynda eigi teymið nú gott samstarf við Vinnumálastofnun. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun hafa komið upp þrjú tilfelli hjá stofnuninni frá því í nóvember á síðasta ári þar til í apríl á þessu ári, þar sem grunur hefur vaknað um að aðstæður séu verulega óviðundandi í fyrirtækjum hér landi. Í einu þessara tilvika vaknaði sterkur grunur um mansal. „Ef slíkur grunur vaknar þá óskum við eftir aðstoð lögreglu. Nú tryggjum við að þessi mál komist í viðeigandi farveg,“ segir Gísli og bætir við að þekking á þessu sviði sé að aukast. Að sögn Gísla hefur aukin þekking og umræða haft í för með sér að fólk tekur meira eftir mansalsmálum. „Erlendum starfsmönnum fjölgar mikið hér á landi og það er mikil uppbygging í gangi á Íslandi. Það býður ákveðinni hættu heim,“ segir Gísli Davíð Karlsson.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Játar innbrot í búin Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fleiri fréttir Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sjá meira