Rúnar Már Sigurjónsson skoraði mark Sundsvall þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við AIK á útivelli í 1. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.
Mark Sundsvall, sem kom á 42. mínútu, var alíslenskt en Kristinn Steindórsson átti þá stoðsendingu á Rúnar Má sem skoraði.
Forystan entist þó aðeins í mínútu því Fredrik Brustad jafnaði fyrir AIK á 43. mínútu og þar við sat.
Fleiri urðu mörkin ekki og liðin sættust á skiptan hlut. Rúnar Már og Kristinn léku allan leikinn fyrir Sundsvall sem og Haukur Heiðar Hauksson fyrir AIK.
