Verðlauna fyrir samkennd og hugrekki í MR Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 1. júní 2016 13:00 Samfélagsverðlaun nemenda Menntaskólans í Reykjavík eru veitt árlega við skólalok til heiðurs Andreu Urði Hafsteinsdóttur og kennd við hana. Vísir/Hanna
Andrea Urður Hafsteinsdóttir, nýstúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík, er handhafi nýrra samfélagsverðlauna sem voru stofnuð í hennar nafni. Andrea Urður opnaði umræðu um geðsjúkdóma innan MR og deildi eigin reynslu. Þá stóð hún fyrir fræðsluviku um þunglyndi og aðrar lyndisraskanir og fékk fyrirlesara til að fræða nemendur um geðsjúkdóma. „Þetta var ótrúlega erfitt,“ segir hún um þá ákvörðun sína að deila reynslu sinni með samnemendum sínum. „Ég hugsaði um að hætta við þetta allt saman. Ég var næstum því búin að gubba á sviðið af stressi og þetta tók á,“ segir Andrea.Geðhjúkrunarfræðingur í 70% starfi í MR Frásögn hennar og fræðslan sem hún stóð fyrir varð til þess að nemendur í skólanum þekktu hjá sér einkenni og leituðu aðstoðar. „Það er mikils virði að fólk sem gerði sér ekki áður grein fyrir veikindum sínum gat leitað sér hjálpar,“ segir Andrea. Í Menntaskólanum í Reykjavík starfar geðhjúkrunarfræðingur í 70% starfi. Andrea segir það nauðsynlegt. „Það er einsdæmi að hjá framhaldsskóla sé starfandi geðhjúkrunarfræðingur. Aðgengi að sérfræðingi skiptir máli,“ segir Andrea og segir ekki nóg að ræða við námsráðgjafa um geðsjúkdóma þótt hann geti vísað fólki rétta leið.Verðlaunin í nafni Andreu Verðlaunin voru stofnuð í nafni Andreu Urðar af fráfarandi Inspector Scholae, Hönnu Maríu Geirdal. „Heilsa er ekkert síður mikilvæg en einkunnir. Það sem stendur eftir eftir menntaskólaárin er ekki endilega hvað þú lærðir heldur hvernig þér leið,“ segir Hanna María og segir verðlaunin verða veitt árlega til þess nemanda sem hefur skarað fram úr þegar kemur að hugrekki, heilsu, andlegri sem líkamlegri, og fyrir samkennd, væntumþykju og vináttu. „Andreu tókst að fylla nemendakjallarann og þar stóðu nemendur og hlustuðu á skólasystur sína tala um erfiða reynslu. Að auki stóð hún að fræðslu og stuðningi fyrir nemendur skólans. Framtak hennar er ómetanlegt enda stuðlaði það að því að margir aðrir nemendur leituðu sér hjálpar.“Nemendur beittu þrýstingi Hanna María segist stolt af því að í MR starfi geðhjúkrunarfræðingur. „Það var vegna þrýstings frá nemendum, og rektor hefur einnig barist fyrir því að nemendur hafi aðgengi að þessari þjónustu. Aðrir skólar ættu að taka þetta sér til fyrirmyndar,“ segir Hanna María, fráfarandi inspector scholae. Greinin birtist í Fréttablaðinu 1.júní
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira