Stálu rándýrum fatnaði og skarti: Virðast hafa stundað skipulagða glæpastarfsemi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 2. júní 2016 11:38 Þjófarnir stálu fatnaði og skarti. Vísir/Getty
Tveir erlendir menn eru í haldi lögreglu grunaðir um umfangsmikinn þjófnað á skartgripum og dýrum fatnaði úr fjölmörgum verslunum á Höfuðborgarsvæðinu, í Hafnarfirði og á Suðurnesjum. Bjarni Ólafur Magnússon, lögreglumaður hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir allt benda til þess að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða. „Mennirnir eru í haldi hjá okkur eins og stendur. Það verður metið af ákærusviði í samvinnu við okkur hvert framhaldið verður,“ útskýrir Bjarni. Hann segir að líklega verði sótt um gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur síðar í dag en það er að sjálfsögðu dómara að ákveða að lokum. Mbl greindi frá þessu í dag.Umfangsmikið mál og frekt á mannafla Málið er gríðarlega umfangsmikið en mennirnir hafa stolið fatnaði og skartgripum úr fjölmörgum verslunum í þremur sveitarfélögum sem fyrr segir. Hald var lagt á sjö hundruð þúsund króna hring sem dæmi en mest af þýfinu er dýr fatnaður.Að öllum líkindum verður sótt um gæsluvarðhald yfir mönnunum.vísir/vilhelmLögregla framkvæmdi húsleitir í gær og mennirnir verða yfirheyrðir í dag. Frekari vettvangsrannsókna verður þörf í kjölfarið auk þess sem fjölmörg vitni verða kölluð til. Bjarni Ólafur staðfestir í samtali við Vísi að um feykilegt magn af munum sé að ræða. Unnið er að því núna að rekja hvaðan munirnir eru en það getur verið þrautin þyngri. „Það eru ýmsar verslanir sem hafa kannski ekki áttað sig á því að munirnir eru horfnir og hvað þá hvenær það var og slíkt,“ útskýrir Bjarni. Tveir starfsmenn fara yfir haldlagða muni í dag og næstu daga en um tíu starfsmenn koma að málinu nú á fyrstu dögunum þar sem mikilvægt er að varpa ljósi á ýmis atriði sem ókunnugt er um að svo stöddu. Jafnvel í samstarfi við erlend glæpasamtök „Við höfum bara ákveðinn tímaramma til að vinna fyrstu skrefin. Þess vegna er þetta unni hratt og af miklum massa til að byrja með. Þetta er bæði tímafrekt og frekt á mannafla. Það þarf að skoða hversu marga staði er um að ræða og til hvers langs tíma brotastarfsemin nær,“ nefnir Bjarni. Lögregla hefur í nógu að snúast enda er málið viðamikið.Vísir/HariÞá þarf lögregla að afla upplýsinga um hvenær mennirnir komu til landsins, hvar þeir hafa dvalið hér á landi og hvert þeir hafa farið. Þá vinnur lögregla úr gögnum tengdum ökutækjum mannanna og eru í samstarfi við starfsmenn Póstsins og Tolleftirlits þar sem þýfið gæti mögulega hafa verið sent úr landi. Mennirnir fóru vítt yfir og hafa stundað glæpastarfsemina um nokkurt skeið. „Þeir eru að bera sig það faglega að þessu,“ segir Bjarni sem telur ljóst að um skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða. Í framhaldinu verður skoðað hvort mennirnir hafi átt í samstarfi við erlend glæpasamtök, verður sú vinna unnin í samstarfi við Europol og lögregluyfirvöld erlendis.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Sjá meira