Sjúkir fá sjúkrakostnað frá öðru ríki innan EES endurgreiddan Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 2. júní 2016 18:04 EES-ríkið verður þó að veita sömu þjónustu og fæst hér á landi. Vísir/Vilhelm
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um rétt sjúklinga til að sækja sér heilbrigðisþjónustu til annarra aðildarríkja EES-samningsins og fá endurgreiddan útlagðan kostnað sem svarar því að samsvarandi þjónusta hefði verið veitt hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Reglugerðin hefur þegar tekið gildi en hún á stoð í ákvæði í lögum um sjúkratryggingar sem samþykkt var í mars síðastliðnum. Málið varðar rétt sjúklinga til heilbrigðisþjónustu yfir landamæri sem tryggður er í tilskipun sem sett er á grundvelli EES-samningsins. Nú geta því sjúkratryggðir einstaklingar sótt heilbrigðisþjónustu í öðru aðildarríki EES-samningsins og fengið kostnaðinn endurgreiddan frá sjúkratryggingum. Ákveðin skilyrði verða þó að vera uppfyllt svo fallist verði á endurgreiðsluna. Þannig getur endurgreiðslan aðeins numið að hámarki þeirri fjárhæð sem samsvarandi þjónusta hefði kostað í íslenska heilbrigðiskerfinu og auk þess er áskilið að um heilbrigðisþjónustu sé að ræða sem einnig sé veitt hér á Íslandi. Fleiri skilyrði eru talin upp í tilkynningunni: „Helstu skilyrði: Með reglugerðinni er sett sú meginregla að sjúklingur þurfi ekki að sækja um samþykki fyrir að sækja sér heilbrigðisþjónustu erlendis áður en þjónustan er veitt. Frá þessu eru þó undantekningar líkt og kveðið er á um í 9. gr. Þetta á t.d. við ef meðferð krefst innlagnar á sjúkrahús í eina nótt eða lengur, ef meðferð er sérstaklega áhættusöm eða ef ástæða er til að efast um gæði þjónustunnar. Heimilt er að synja sjúklingi um endurgreiðslu kostnaðar við ákveðnar aðstæður. Þetta á t.d. við ef hægt er að veita þjónustuna hér á landi innan tímamarka sem talin eru réttlætanleg þegar tekið er mið af heilsufarsástandi sjúklings og líklegri framvindu sjúkdóms, ef öryggi sjúklingsins er talið stefnt í hættu eða ef ástæða er talin til að efast um þjónustan standist lágmarkskröfur um öryggi og gæði. Nánar er kveðið á um forsendur synjunar í 11. gr. reglugerðarinnar. Sjúkratryggður sem staddur er í aðildarríki EES-samningsins getur leitað sér heilbrigðisþjónustu þar á grundvelli reglugerðarinnar. Endurgreiðsla sjúkratrygginga vegna útlagðs kostnaðar sjúklings fer eftir ákvæðum reglugerðarinnar og gildir þá einu hvernig þjónustan er skipulögð, veitt eða fjármögnuð.“
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Sjá meira