Hæstiréttur þyngdi nauðgunardóm Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. október 2016 16:00 Hæstiréttur Íslands. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur þyngt dóm yfir Birni Valdimarssyni sem sakfelldur var í héraðsdómi fyrir nauðgun. Er honum gert að sæta fangelsi í tvo og hálft ár en héraðsdómur hafði áður dæmt hann í tveggja ára fangelsi. Var hann sakfelldur fyrir að hafa notfært sér að konan, sem dvaldi í foreldrahúsum, gat ekki spornað við samræðinu sökum svefndrunga og mikillar áfengisdrykkju fyrr um kvöldið. Björn og konan þekktust aðeins lítillega en þau höfðu verið á balli á Vesturlandi fyrr um kvöldið, þann 20. desember 2014. Þaðan hafi konan farið heim til sín en Björn og vinur hans, sem var í sambandi við konuna, kum síðar að heimili hennar.Frásögn konunnar er á þann veg að hún hafi vaknað við það að verið var að eiga við hana samræði og kyssa hana. Hún hafi ekki áttað sig á aðstæðum, aðeins kysst á móti en svo áttað sig á því hvað um var að ræða. Hún hefði orðið mjög hrædd, frosið og hvorki veitt mótspyrnu né kallað á hjálp. Hún átti erfitt með að muna hvernig þessu lauk. Björn sagði konuna hins vegar hafa verið vakandi þegar hann kom inn í herbergið. Þau hafi síðan farið að kyssast, hrósað hvoru öðru og stundað kynmök með samþykki hennar. Svo hefði hún staðið upp úr rúminu, klætt sig og farið yfir í herbergi systur sinnar. Þar var systir sín með kærasta sínum og brugðust þau við með því að segja manninum að koma sér í burtu. Á meðan var konan hágrátandi inn í herbergi systur sinnar. Í hamagangnum vöknuðu foreldrar systranna og hélt faðirinn hinum dæmda þar til lögregluna bar að garði skömmu síðar. Héraðsdómur hafði áður talið að framburður konunnar væri í alla staði trúverðugur, frá upphafi skýr og stöðugur í öllum höfuðatriðum. Á hinn bóginn var framburður mannsins á skjön við framburð vinar hans til dæmis þess efnis að konan hefði verið vakandi þegar þeir komu inn í herbergi hennar. Taldi Hæstiréttur sannað að Björn hafi nýtt ér ölvun og svefndrunga brotaþola til að hafa við hana samræði. Þyngdi Hæstiréttur dóm héraðsdóms um hálft ár auk þess sem Björn þarf að greiða konunni 1,5 milljónir með vöxtum en héraðsdómir hafði dæmt konunni eina milljón í miskabætur. Þarf Björn einnig að greiða allan sakarkostnað, samtals 1,2 milljónir.Dómur Hæstaréttar.
Tengdar fréttir Tvö ár fyrir nauðgun: Faðir konunnar hélt manninum þar til lögregla mætti á svæðið Konan vaknaði við samræði sem maðurinn fullyrti að hefði verið með fullu samþykki hennar. 5. febrúar 2016 16:31 Mest lesið „Ef ekkert breytist þá erum við að fara á hausinn“ Innlent Nemandinn ákærður fyrir tilraun til manndráps Innlent Stefna íslenska ríkinu vegna andláts tveggja ára dóttur Innlent Fjóla felldi hreinan meirihluta Innlent Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Erlent Jón sendir valgreiðslukröfur í heimabanka stuðningsmanna sinna Innlent Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Erlent Enginn axli ábyrgð á mistökum sem leiddu til andláts ungra barna Innlent Segja fiskiolíu geta aukið líkurnar á gáttatifi og heilablóðfalli Erlent Skipsbrak varpar ljósi á harmleik undan Vestfjörðum fyrir 72 árum Innlent Fleiri fréttir Talsvert í að kíghóstinn gangi niður Rýna í aðgerðir almannavarna síðustu sex mánuði á Reykjanesi Fjóla felldi hreinan meirihluta Hvalveiðar og húsnæðismál í hádegisfréttum „Ég skil vel að einhverjir séu óþolinmóðir“ Enginn axli ábyrgð á mistökum sem leiddu til andláts ungra barna Fjármálastjórinn orðinn sveitarstjóri Nemandinn ákærður fyrir tilraun til manndráps Jón sendir valgreiðslukröfur í heimabanka stuðningsmanna sinna „Ef ekkert breytist þá erum við að fara á hausinn“ Tveir handteknir í tveimur aðskildum málum vegna ofbeldis í heimahúsi Niðurskurður skerðir þjónustu og ógnar öryggi Skipsbrak varpar ljósi á harmleik undan Vestfjörðum fyrir 72 árum Afhentu ráðherra 46 þúsund undirskriftir á eldislöxum Hitafundur í Laugarnesskóla vegna skólauppbyggingar Mættu ríðandi í skólann Stefna íslenska ríkinu vegna andláts tveggja ára dóttur Undir áhrifum og með eftirlíkingu af skotvopni Umtalsverðar breytingar á skipulagi Keflavíkurflugvallar Ráðherra sé að skapa ríkinu milljarðatjón með töfum Stefna ríkinu eftir andlát tveggja ára dóttur og örlög sjómanna sem hurfu Ákærður fyrir stunguárás á akbraut Árás á tólf ára stúlku fór betur en á horfðist Bjarni sagður lítillátur í samanburði við Keníuforseta Sleppt úr haldi lögreglu Draumórar að löggæsla muni ekki skerðast Segir fangaverði sinna starfi sínu af stakri trúmennsku Íslendingurinn á meðal þeirra sem slösuðust Sker úr um hvort sáðlát yfir andlit með valdi sé nauðgun Björn Þorláks segir Katrínu ekki virða sig viðlits Sjá meira
Tvö ár fyrir nauðgun: Faðir konunnar hélt manninum þar til lögregla mætti á svæðið Konan vaknaði við samræði sem maðurinn fullyrti að hefði verið með fullu samþykki hennar. 5. febrúar 2016 16:31